Kynningarfundur um merkingar á efnavöru verður haldinn miðvikudaginn 5. apríl kl. 10.00 – 12.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Fundurinn er haldinn í samvinnu Umhverfisstofnunar, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Félags atvinnurekenda.
Dagskrá
- Efnalögin og eftirlit með efnavörum – Björn Gunnlaugsson
- Öryggisblöð – flæði upplýsinga í aðfangakeðjunni – Björn Gunnlaugsson
- Flokkun og merking á efnavörum, ábyrgð fyrirtækja og eftirlit – Einar Oddsson
- Flokkun og merking á efnavörum, ábyrgð fyrirtækja og eftirlit frh. – Einar Oddsson
- Þvingunarúrræði og viðurlög – Maríanna Said
- Umræður
Fundarstjóri: Bryndís Skúladóttir, Samtökum iðnaðarins.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á Facebook-síðu SI.