Aðalfundur Íslensk-indverska viðskiptaráðsins (ÍIV) verður haldinn fimmtudaginn 14. júní næstkomandi kl. 11.30. Á undan aðalfundinum, kl. 10, verður haldið málþing, þar sem kynnt verður ný skýrsla um efnahagsmál, atvinnulíf og viðskiptatækifæri á Indlandi. Málþingið er haldið í samstarfi ÍIV, sendiráðs Indlands og Íslandsstofu.
Kl. 10.00: India Surging Ahead 2018 – dagskrá málþingsins
- Sendiherra Indlands á Íslandi, Rajiv Kumar Nagpal, kynnir efni skýrslunnar og hin miklu tækifæri sem bjóðast í viðskiptum, fjárfestingu og framleiðslu á Indlandi.
- Bala Kamallakharan, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins og stofnandi Start-up Iceland og Dattaca Labs Iceland kynnir samstarf um nýsköpun og viðskiptaþróun milli Indlands og Íslands.
- Andri Marteinsson, forstöðumaður iðnaðar og þjónustu hjá Íslandstofu, kynnir „Smart Sustainable Livable Solutions/Smart Cities“.
Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið. Vinsamlegast upplýsið um þátttöku í síma 534 9955 eða með tölvupósti: cons.reykjavik@mea.gov.in
Kl. 11.30: Dagskrá aðalfundar Íslensk-indverska viðskiptaráðsins
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar
- Skýrsla endurskoðenda
- Val stjórnar til tveggja ára
- Val skoðunarmanns
- Ákvörðun félagsgjalds
Fundirnir verða haldnir í húsnæði Íslandsstofu, Sundagörðum 2.
Fundarstjórn: Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og ÍIV.
Skráning á aðalfundinn hér að neðan