FA og ÍEV styðja frumvarp um bókun 35

16.10.2026

Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið hafa sent utanríkismálanefnd Alþingis sameiginlega umsögn um frumvarp utanríkisráðherra um lagfæringar á innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn. Samtökin lýsa eindregnum stuðningi við frumvarpið og mæla með því að Alþingi ljúki afgreiðslu frumvarpsins án frekari tafa.

Í frumvarpinu felst að ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði, sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum, er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði, skuli hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. „Með þessu er bætt úr annmarka á innleiðingu EES-samningsins í íslenzkan rétt, þjóðréttarskuldbindingar Íslands eru uppfylltar og réttaröryggi bæði einstaklinga og fyrirtækja er betur tryggt,“ segir í umsögn FA og ÍEV. „Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá upphafi. Með frumvarpinu er því ekki verið að undirgangast nýja þjóðréttarlega skuldbindingu, heldur tryggja að Ísland uppfylli með fullnægjandi hætti skuldbindingu sem það tók á sig við gildistöku samningsins árið 1994.“

Vegur ekki að stjórnarskrá eða fullveldi
Samtökin hafna þeim málflutningi að með samþykkt frumvarpsins væri vegið að stjórnarskránni eða gengist undir erlent vald. „Frumvarpið felur hvorki í sér að reglur Evrópusambandsins öðlist sjálfkrafa gildi hér á landi né að þær gangi framar ákvæðum stjórnarskrárinnar. Það tekur einungis til árekstra milli tveggja íslenzkra lagaákvæða, þegar annað þeirra hefur réttilega innleitt skýra og óskilyrta EES-skuldbindingu. Alþingi heldur jafnframt valdi sínu til að mæla sérstaklega fyrir um aðra niðurstöðu. Reglan sem frumvarpið kveður á um er í raun lögskýringarregla. Alþingi getur alltaf vikið frá henni með sérstakri ákvörðun um annað, þannig að ekkert lagasetningarvald er framselt,“ segir í umsögn samtakanna.

„Í fullveldi ríkja felst réttur þeirra til að gera alþjóðasamninga. Ísland hefur samið um þátttöku í sameiginlegu og einsleitu evrópsku efnahagssvæði og stjórnvöldum ber að standa við þær skuldbindingar sem af samningnum leiða. Það er ekki skerðing á fullveldi að efna gerða samninga.“

Mikilvægt hagsmunamál atvinnulífsins
FA og ÍEV leggja áherslu á að fullnægjandi innleiðing EES-samningsins og trygging þeirra réttinda sem af honum leiða sé eitt af mikilvægustu hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Fyrirtæki sem eigi í viðskiptum á innri markaði Evrópu verði að geta treyst því að þær reglur sem gilda um starfsemi þeirra séu skýrar og fyrirsjáanlegar og að réttindi þeirra samkvæmt EES-samningnum njóti fullnægjandi verndar í íslenskum rétti.

„Réttaröryggi, fyrirsjáanleiki og einsleitni regluverks eru grundvallarforsendur heilbrigðrar samkeppni, fjárfestinga og viðskipta yfir landamæri. Óvissa um gildi og forgang EES-reglna getur skapað fyrirtækjum kostnað og dregið úr þeim ávinningi sem þátttaka Íslands í innri markaðnum á að tryggja,“ segir í umsögn samtakanna.

Umsögn FA og ÍEV í heild

Nýjar fréttir

Innskráning