Næsta örnámskeið FA fjallar um helstu möguleika ChatGPT og skapandi gervigreindar. Leiðbeinandi er Stefán Atli Rúnarsson. Við setjum þetta námskeið á dagskrá eftir að fjöldi félagsmanna óskaði í árlegri þjónustukönnun okkar eftir aukinni fræðslu um hagnýtingu gervigreindar í fyrirtækjarekstri. Námskeiðið verður haldið á Teams þriðjudaginn 17. mars kl. 10. Skráning fyrir félagsmenn er hér neðar á síðunni.
Örnámskeiðið er hnitmiðað og hagnýtt yfirlit yfir það hvernig gervigreind getur margfaldað afköst og hugmyndaflug í daglegu starfi. Á aðeins hálftíma fá þátttakendur skýra mynd af því hvernig nýta má tæknina í raunverulegum verkefnum – án tæknilegra málalenginga.
Stefán Atli Rúnarsson er viðskiptafræðingur og fjölmiðlatæknir með áralanga reynslu í markaðsmálum, efnisgerð og stafrænum lausnum. Hann hefur haldið fjölda námskeiða um gervigreind fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök víðs vegar um landið. Hátt í 3.000 manns hafa setið námskeið hjá Stefáni þar sem hann fer yfir hvernig hægt er að nýta gervigreind á hagnýtan og aðgengilegan hátt – án þess að þurfa tæknilega sérþekkingu.
Örnámskeið FA eru eingöngu fyrir félagsmenn og hafa notið mikilla vinsælda, ekki síst hjá stjórnendum. Námskeiðin eru haldin á netinu og taka 30 mínútur.
Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi atriði:
Hvers vegna gervigreind núna?
- Stuttur inngangur: Hvað er gervigreind og af hverju er hún að umturna
vinnumarkaðnum? - Frá tækni til tækis: Hvers vegna þetta er orðið hagnýtt verkfæri fyrir alla –
ekki bara tæknifólk.
Skilvirkari gagnaúrvinnsla
Sýnt er hvernig gervigreind sparar tíma og eykur yfirsýn með því að:
- Taka saman fundarpunkta: Breyta löngum samtölum í hnitmiðaðar
aðgerðaáætlanir. - Greina stór gagnasett: Draga mikilvægustu upplýsingarnar úr flóknum
gögnum. - Gera samantektir: Skima skýrslur og texta á augabragði.
Skapandi skrif og efnisgerð
Hvernig gervigreind umbreytir skrifum:
- Stíll og tónn: Að skrifa texta sem hentar ólíkum tilefnum.
- Markhópar: Aðlaga skilaboð að ólíkum hópum á sekúndum.
- Fjölhæfni: Raunveruleg dæmi um hvernig sami grunntexti verður að
markaðsefni, skýrslu eða kynningu.
Frá texta til myndar
- Galdurinn á bak við „prompt“: Hvernig nákvæm textalýsing verður að
vandaðri mynd. - Sjónræn miðlun: Gerð markaðsmynda, hugmyndavinna og sjónræn
framsetning á örskotsstundu.
Forritun og stafrænar lausnir
Stutt sýnishorn af nýjum veruleika:
- Forritun fyrir alla: Hvernig gervigreind skrifar einfaldan kóða og leysir
tæknileg verkefni.