Hverjir standa fyrir aðförinni að lambinu helga?

17.04.2026

Grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, í Morgunblaðinu 17. apríl 2026.

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, skrifar grein í Morgunblaðið sl. mánudag og gerir að umtalsefni þá staðreynd að íslenzkum neytendum stendur til boða innflutt lambakjöt. Í grein, sem myndi sóma sér prýðilega sem prédikun í söfnuði þar sem íslenzka lambið væri tilbeðið sem heilög vera, sparar ráðherrann ekki stóru orðin þegar hann talar um þá sem gera sig seka um innflutning á lambakjöti, eða „aðför að íslenska lambinu“ eins og það heitir í fyrirsögn. Guðni bendir á að ýmislegt sé „heilagt í lífi þjóða og meðal manna, sem engum dettur í hug að níðast á eða fara gegn“. Prédikarinn talar um græðgi og virðingarleysi með „kalda lund og brotavilja og siðferði sem virðir engin landamæri“ og að virðingarleysið sé bæði sýnt sauðfjárbændum og lambinu sjálfu, „sem talið er best í víðri veröld.“

Er glæpur og trúvilla að gefa neytendum val?
Nú vitum við flest að íslenzkt lambakjöt þykir í fremstu röð. En er það eina lambakjötið sem ekki er beinlínis trúvilla að borða? Ef litið er á innflutningstölur síðustu missera, má sjá að flutt er inn lambakjöt t.d. frá Nýja Sjálandi, Írlandi, Bretlandi, Chile og Spáni. Nýsjálendingar og Írar, svo dæmi séu tekin, eru alveg jafnsannfærðir og Íslendingar um að þeir sjálfir framleiði bezta lambakjöt í heimi. Getur verið að íslenzkir neytendur megi bara alveg prófa lambakjöt frá útlöndum og bera saman við íslenzka lambið og að það sé hluti af eðlilegum rekstri innflutningsfyrirtækja og verzlana að gefa þeim slíkt val – svona ef við gefum okkur að matvörur séu almennt ekki heilagar?

Þegar Guðni talar um nýsjálenzkt lambakjöt og vörufalsanir í sömu andrá (gefur í skyn að innflytjendur nýsjálenzka kjötsins séu að reyna að selja það sem íslenzkt), er þeirri spurningu ósvarað hvers vegna seljendur lambakjöts, sem margir telja það bezta í heimi, ættu að reyna að selja það sem eitthvað annað. Orðspor nýsjálenzka kjötsins á heimsvísu er miklu betur þekkt en þess íslenzka, enda hafa Nýsjálendingar gert arðbæra útflutningsgrein úr sinni sauðfjárrækt, nokkuð sem Íslendingum hefur ekki tekizt undanfarna áratugi.

Hverjir eru trúvillingarnir?
Í sínum gamlatestamentislega trúarhita spyr Guðni Ágústsson: „Hvað fær gróin innflutningsfyrirtæki til að misbjóða bæði þjóð sinni og sínum eigin heiðri með þessari áráttu aftur og aftur?“ Já hverjir eru það sem vaða uppi með slíka trúvillu? Það er ekki hægt að sjá út úr tölum Hagstofunnar hverjir flytja inn mest af lambakjöti, en það er auðvelt að skoða á vef Stjórnarráðsins hvaða fyrirtæki hafa keypt mest af tollkvóta til að flytja inn lambakjöt. Þegar niðurstöður tollkvótaútboða áranna 2022-2025 eru skoðaðar, kemur í ljós að seldur var tollkvóti til að flytja inn 1.070 tonn af kinda- eða geitakjöti. Þar af fengu innflutningsfyrirtæki, heildverzlanir og smásölukeðjur, rétt tæp 380 tonn eða 35,5% af tollkvótanum. Nærri tveir þriðju hlutar tollkvótans, eða rúmlega 690 tonn, komu hins vegar í hlut innlendra kjötafurðastöðva – muniði, þessara sem fengu undanþágu frá samkeppnislögum sem var meðal annars rökstudd með því að þær stæðu höllum fæti í samkeppni við innflutt kjöt.

Er Þórólfur kaupfélagsstjóri líka genginn af trúnni?
Í síðasta tollkvótaútboði var fyrirtækið Háihólmi þannig eitt þeirra fyrirtækja sem fengu mestan kvóta til að flytja inn lambakjöt, eða tæplega 93 tonn. Það er á almanna vitorði að Háihólmi er leppur fyrir Kaupfélag Skagfirðinga. Fyrirtækið skaut upp kollinum í tollkvótauppboðum eftir að aðalfundur KS ályktaði að kaupfélagið og dótturfélög þess ættu ekki að stunda innflutning landbúnaðarafurða. Fyrirtækið er sagt í eigu innkaupastjóra Esju Gæðafæðis, dótturfélags KS.

Það ættu nú að vera hæg heimatökin hjá Guðna að hringja í Þórólf fóstra sinn kaupfélagsstjóra og spyrja hvort hann, af öllum mönnum, sé genginn af trúnni á íslenzka lambið.

Jan van Eyck: Tilbeiðsla lambsins, 1432.
Jan van Eyck: Tilbeiðsla lambsins, 1432.

Nýjar fréttir

16. apríl 2026

Innskráning