Reglubyrðin er ekki náttúrulögmál

21.10.2026

Grein Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 21. október 2026.

Ísland hlýtur ekkert sérstaklega eftirsóknarverðan Norðurlandameistaratitil samkvæmt nýrri skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins Copenhagen Economics fyrir Norrænu ráðherranefndina. Ísland er það Norðurlandanna þar sem stjórnsýslu- og regluverksbyrði fyrirtækja er þyngst, samkvæmt mælikvarða Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Munurinn á Íslandi og hinum Norðurlöndunum er sláandi, eins og Viðskiptablaðið sagði frá í síðustu viku.

Á mælikvarðanum, þar sem lægri einkunn þýðir minni regluhindranir, fær Ísland 2,7 en Danmörk 1,0, Svíþjóð 1,1, Finnland 1,5 og Noregur 2,3. Ísland er jafnframt langt yfir meðaltali Evrópusambandsins, sem er 1,5.

Þetta er ekki aðeins vandræðalegur samanburður. Íþyngjandi regluverk kostar fyrirtæki tíma og peninga, torveldar nýjum fyrirtækjum að hasla sér völl, dregur úr samkeppni og getur á endanum bitnað á neytendum í formi hærra vöruverðs og lakari þjónustu.

Reglur eru auðvitað ekki slæmar í sjálfu sér. Þær eru nauðsynlegar til að tryggja t.d. öryggi, heilbrigði, neytendavernd og heilbrigða samkeppni. En það á að vera sjálfsögð krafa að þær gangi ekki lengra en nauðsynlegt er til að ná markmiðum sínum og að stjórnvöld velji þá leið sem hefur minnstan óþarfa kostnað í för með sér fyrir atvinnulífið.

Viðvörunarbjöllurnar hafa hringt áður
Niðurstöður nýju skýrslunnar koma því miður ekki á óvart. Í Íslandsskýrslu OECD frá því í júní í fyrra var sérstaklega fjallað um hvernig regluverk hamlaði samkeppni og framleiðniaukningu.OECD benti meðal annars á flókin ferli við stofnun fyrirtækja og öflun rekstrarleyfa, íþyngjandi kröfur um starfsréttindi og hindranir í vegi viðskipta. Í skýrslunni voru lagðar fram ýmsar afmarkaðar tillögur um úrbætur.Þær eru margar hverjar svo einfaldar og skynsamlegar að furðu sætir að þær skuli ekki þegar hafa verið framkvæmdar.

Hvers vegna þarf fyrirtæki til dæmis að eiga samskipti við margar opinberar stofnanir til að afla leyfa fyrir starfsemi sinni? Hvers vegna geta stjórnvöld ekki komið sér saman um eina rafræna gátt þar sem fyrirtæki sækja um nauðsynleg leyfi og stofnanir samræma afgreiðslu sína? OECD leggur einmitt til að slíkri gátt verði komið á fót. Stofnunin leggur einnig til að tekin verði upp sú meginregla að þögn stjórnvalda jafngildi samþykki, þannig að tiltekin leyfi teljist veitt hafi stjórnvöld ekki afgreitt umsókn innan lögbundins frests. Slíkt fyrirkomulag þyrfti að sjálfsögðu að takmarkast við mál þar sem almannahagsmunir og öryggissjónarmið leyfa.

Gullhúðun í nafni íslenzkra aðstæðna
Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið hafa lengi beitt sér fyrir einföldun regluverks. Í febrúar síðastliðnum héldum við, ásamt fleiri aðilum, ráðstefnu um einföldun Evrópuregluverks og bætta samkeppnishæfni. Í framhaldinu sendum við stjórnvöldum tillögur um að innleiðing einfaldaðra Evrópureglna fengi forgang hér á landi og að komið yrði í veg fyrir svokallaða gullhúðun EES-reglna, þ.e. þegar íslenzk stjórnvöld bæta við þær séríslenzkum, íþyngjandi kröfum.Í apríl voru þessar tillögur teknar í öllum meginatriðum upp í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna atvinnustefnu Íslands.

Það er sérstakt áhyggjuefni þegar íslenzk stjórnvöld telja ástæðu til að gera strangari kröfur til íslenzkra fyrirtækja en gerðar eru til sambærilegra fyrirtækja í öðrum EES-ríkjum. Stundum virðist smæð íslenzks atvinnulífs beinlínis vera notuð sem rök fyrir því að ganga lengra en Evrópureglurnar gera ráð fyrir.

Tökum dæmi: Þegar Evrópusambandið samþykkti árið 2014 tilskipun um ófjárhagslega upplýsingagjöf stórra fyrirtækja var miðað við að skyldan næði til tiltekinna félaga með fleiri en 500 starfsmenn. Við innleiðingu tilskipunarinnar á Íslandi árið 2016 var hins vegar ákveðið að láta upplýsingaskylduna ná til mun fleiri fyrirtækja, meðal annars stórra félaga samkvæmt íslenzkum ársreikningalögum, þar sem 250 ársverk voru eitt þriggja stærðarviðmiða. Þar með voru gerðar ríkari kröfur til íslenzkra fyrirtækja en leiddi af tilskipuninni.

Þarna birtist í hnotskurn hugsunarháttur sem við þurfum að losna við. Það að tiltölulega fá íslenzk fyrirtæki nái tilteknum stærðarmörkum er ekki sjálfstæð ástæða til að lækka þau. Íslenzkt fyrirtæki með 300 starfsmenn hefur ekki meiri burði til að uppfylla kostnaðarsamar upplýsingaskyldur en sambærilegt fyrirtæki í Danmörku eða Þýzkalandi. Með því að lækka mörkin er verið að leggja þyngri byrðar á íslenzk fyrirtæki en á sambærilega keppinauta þeirra á innri markaði Evrópu.

Þetta sjónarmið er ekki síður mikilvægt nú þegar Evrópusambandið hefur ákveðið að einfalda sjálfbærniregluverkið og undanþiggja fleiri fyrirtæki skyldum til sjálfbærnireikningsskila. Það verður að tryggja að íslenzk fyrirtæki njóti þeirra einfaldana til jafns við fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum.

Smæð íslenzks atvinnulífs á ekki að vera afsökun fyrir strangara regluverki. Hún ætti þvert á móti að vera ástæða til að gæta sérstaks hófs. Fyrirtæki á litlum markaði hafa oft minni möguleika á að dreifa föstum kostnaði við regluvörzlu á umfangsmikla starfsemi.

Ef stjórnvöld telja engu að síður nauðsynlegt að ganga lengra en EES-reglur krefjast eiga þau að þurfa að færa fyrir því skýr og sannfærandi rök, meðal annars með mati á kostnaði fyrirtækja og áhrifum á samkeppnisstöðu þeirra. Upp á slíkt vantar enn stórlega þegar EES-reglur eru innleiddar.

Hver á að einfalda regluverkið?
Gullhúðun er þó aðeins hluti vandans. Íslenzk lög og reglugerðir geta verið óþarflega flókin án þess að eiga nokkuð skylt við EES-reglur. Og jafnvel skynsamlegar reglur geta orðið íþyngjandi ef framkvæmd þeirra einkennist af óþarfri skriffinnsku, ósamræmi milli stofnana eða löngum afgreiðslutíma.

Hér vaknar líka áleitin spurning um það hverjum sé falið að einfalda regluverkið. Opinberar stofnanir hafa ákveðna tilhneigingu til að viðhalda eigin verkefnum og finna sjaldnast ástæðu til að fækka starfsfólki. Þær hafa yfirleitt ekki góða yfirsýn yfir þann kostnað sem reglurnar leggja á fyrirtækin, áhrifin á samkeppni eða þann tíma sem fer í að uppfylla kröfur stjórnvalda. Léttara regluverk og einfaldara eftirlit á með réttu að hafa í för með sér að færra fólk þurfi í opinberum stofnunum til að framfylgja því. Einföldun regluverks á þannig að vera liður í hagræðingaraðgerðum stjórnvalda, lækkun kostnaðar og fækkun opinberra starfsmanna.

Þess vegna má einföldun regluverks ekki eingöngu vera verkefni þeirra sem hafa byggt það upp og annast framkvæmd þess. Það þarf sjálfstætt aðhald, skýrt pólitískt umboð og raunverulega aðkomu þeirra sem þurfa að starfa eftir reglunum.

Einfaldara, hraðara og ódýrara
Auk einfaldari leyfisveitinga og lögbundinna afgreiðslufresta má nefna nokkur dæmi:

  • Í fyrsta lagi ætti að gilda sú meginregla að fyrirtæki þurfi aðeins einu sinni að skila sömu upplýsingum til hins opinbera. Stofnanir eiga að geta miðlað upplýsingum sín á milli, að því marki sem lög heimila, í stað þess að láta fyrirtækin sinna síendurteknum gagnaskilum.
  • Í öðru lagi þarf að samræma opinbert eftirlit betur og haga því eftir raunverulegri áhættu. Fyrirtæki sem hafa sýnt að þau fara eftir reglunum eiga ekki sjálfkrafa að sæta jafnumfangsmiklu eftirliti og þau sem ítrekað brjóta þær.
  • Í þriðja lagi þarf að endurskoða úreltar reglur um starfsleyfi og atvinnuréttindi. Þar sem hægt er að tryggja öryggi og gæði með vægari úrræðum á ekki að viðhalda óþarfa hindrunum fyrir ný fyrirtæki og samkeppni.
  • Í fjórða lagi þarf að einfalda tollafgreiðslu og samræma upplýsingagjöf til þeirra stofnana sem hafa eftirlit með innflutningi. OECD fjallar í skýrslu sinni sérstaklega um þörfina á þessu og sameiginlegri vefgátt fyrir fyrirtæki.
  • Loks þarf að taka upp markvissa endurskoðun gildandi reglna. Þegar nýjar íþyngjandi reglur eru settar ætti að ákveða strax hvenær þær verða endurmetnar, hvort þær hafi náð tilgangi sínum og hvort unnt sé að ná sama árangri með minni kostnaði.

Ekkert af þessu kallar á að slakað sé á eðlilegum kröfum um öryggi, heilbrigði eða neytendavernd. Þetta snýst um að ná sömu markmiðum með skynsamlegri og hagkvæmari hætti.

Nú þarf að láta verkin tala
Það er jákvætt að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur nú boðað bandormsfrumvarp um einföldun regluverks, sem stefnt er að því að leggja fram á Alþingi á vorþinginu.Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrr í mánuðinum vegna kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum er jafnframt boðað sérstakt átak til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur á að móta í samráðshópi ríkisins og aðila vinnumarkaðarins og þær eiga að liggja fyrir í janúar næstkomandi.

Þá stendur til að ræða endurreisn ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur, en Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið hafa einmitt lagt til að sú nefnd verði endurvakin sem samráðsvettvangur atvinnulífsins og stjórnvalda og fái skýrt hlutverk við að fylgja eftir markmiðum um einföldun regluverks. Slík nefnd gæti gegnt mikilvægu hlutverki, að því tilskildu að henni verði tryggt nægilegt sjálfstæði og raunveruleg áhrif á ákvarðanir og stefnu stjórnvalda.

Yfirlýsingum stjórnvalda um léttari reglubyrði ber að fagna. Reynslan kennir okkur hins vegar að það er auðveldara að lofa einföldun regluverks en að hrinda henni í framkvæmd. Flestar reglur eiga sér einhvern tilgang og oft einarða málsvara. Þess vegna þarf pólitískan vilja og festu til að afnema reglur sem eru úreltar eða ná ekki markmiðum sínum. Að fela embættismönnum verkefnið eingöngu er ekki vænlegt til árangurs. Raunverulegur árangur í einföldun regluverks næst ekki fyrr en stjórnvöld fara að líta á tíma og fjármuni fyrirtækjanna sem verðmæti sem þeim ber að fara jafnvarlega með og opinbert fé.

Félag atvinnurekenda mun eiga aðild að starfshópi stjórnvalda. Við köllum þessa dagana eftir ábendingum félagsmanna um reglur og stjórnsýsluframkvæmd sem mætti einfalda. Ætlunin er að safna áþreifanlegum tillögum sem geta nýtzt í boðuðu umbótastarfi.

Það væri verðugt markmið að Ísland hætti að reka lestina á Norðurlöndum þegar kemur að reglubyrði atvinnulífsins. En árangurinn á ekki aðeins að mæla í alþjóðlegum vísitölum eða í fjölda aðgerðaáætlana og starfshópa. Hann á fyrst og fremst að birtast í því að einfaldara, fljótlegra og ódýrara verði að stofna og reka fyrirtæki hér á landi.

Reglubyrðin er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing ákvarðana sem stjórnvöld hafa tekið — og geta breytt.

Nýjar fréttir

Innskráning