Tvískinnungur mættur í dómsal

18.03.2026

„Endahnútur“ Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 18. mars 2026

Á morgun, fimmtudag, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness sakamál íslenzka ríkisins gegn félagsmanni Félags atvinnurekenda. Forsvarsmaður félagsins Kjútís og hollenzka fyrirtækisins Icelandic Trading Company b.v., sem rekur netverzlun með áfengi undir merkjum Smáríkisins, er ákærður fyrir brot gegn meintum einkarétti íslenzka ríkisins á smásölu áfengis.

Á sama tíma og íslenzka ríkið dregur eitt einkafyrirtæki fyrir dómstóla vegna brots á einkarétti er það nýbúið að semja við annað einkafyrirtæki, þýzka fyrirtækið Heinemann, um að taka að sér reksturinn á stærstu vínbúð landsins í Leifsstöð.

Því hefur verið haldið fram að með þeim gjörningi sé bara verið að láta annan aðila sjá um ríkiseinkasöluna, en íslenzka ríkið er ekki þeirrar skoðunar. Félag atvinnurekenda sendi fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi og bað um staðfestingu á að verzlun Heinemann þyrfti að fara eftir sömu vöruvalsreglum og ríkiseinkasölur, sem eiga m.a. að tryggja gegnsæi og jafnræði í viðskiptum við birgja. Svar ráðuneytisins var afdráttarlaust: Fríhafnarverzlun Heinemann er einkafyrirtæki og þarf ekki að fara eftir þessum reglum.

Nú hefur Heinemann opnað vefverzlun með áfengi; hægt er að panta áfenga drykki á vef fyrirtækisins og sækja í brottfararverzlunina í Leifsstöð. Við þessa netverzlun gerir íslenzka ríkið engar athugasemdir, engin lögreglurannsókn hefur farið fram og enginn hefur verið ákærður.

Íslenzk áfengispólitík hefur lengi einkennzt af hræsni og tvískinnungi. Litið hefur verið framhjá ýmsum viðskiptum sem ekki samræmast hinum meinta einkarétti, t.d. bjórsölu í vegasjoppum og í matvöruverzluninni í Leifsstöð og sölu á vegum alls konar vínklúbba. Það keyrir hins vegar um þverbak þegar íslenzka ríkið stendur sjálft í því að veita sumum einkafyrirtækjum sérlegt leyfi til áfengissmásölu, en setur forsvarsmenn annarra einkafyrirtækja á sakamannabekk.

Hvernig ætli saksóknaranum gangi að halda andlitinu í fyrirtökunni á morgun?

Skjáskot úr vefverslun fríhafnarverslunar Heinemann, til vinstri, og úr vefverslun Smáríkisins, til hægri.

Nýjar fréttir

Innskráning