Hvað kjósa atvinnurekendur?

28.04.2026

„Endahnútur“ Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 29. apríl 2026

Það er ekki oft talað um eða við atvinnurekendur sem kjósendahóp. Samt er það nú svo að fljótt á litið má ætla að af yfir 100.000 kjósendum í Reykjavík geti 15-20 þúsund fallið undir skilgreininguna á atvinnurekanda – eru í vinnu hjá sjálfum sér eða í eigenda- og stjórnendahópi fyrirtækis. Við hjá Félagi atvinnurekenda ræðum þessa dagana við oddvita helstu framboða í Reykjavík um málin, sem brenna á atvinnurekendum, í hlaðvarpsþættinum Kaffikróknum og viðtölin birtast meðal annars á vef Viðskiptablaðsins.

Í sveitarstjórnarkosningum er tekizt á um mál sem varða atvinnurekendur miklu. Eitt mál, sem brennur á atvinnurekendum í Reykjavík, er að fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði í borginni hefur um árabil verið sá hæsti á höfuðborgarsvæðinu. Borgin hefur ekki fylgt fordæmi nágrannasveitarfélaga, sem hafa lækkað skattprósentuna til að mæta miklum hækkunum á fasteignamati. Þetta kemur niður á rekstri fyrirtækja í Reykjavík og er byrjað að hafa áhrif á ákvarðanir fyrirtækja um hvar þau staðsetja starfsemi sína.

Annað er ótrúlega hæg, ógegnsæ og óskilvirk þjónusta Reykjavíkurborgar. Athafnafólk getur þurft að bíða mánuðum og misserum saman með að hefja rekstur á meðan borgarkerfið flækir leyfisveitingar. Bara það að svara innan skynsamlegs frests erindum og fyrirspurnum fyrirtækja virðist borgarkerfinu ofviða.

Greiðari umferð í Reykjavík er stórt hagsmunamál út frá vörudreifingu, aðgengi að fyrirtækjum og að ferðatími starfsfólks sé stuttur. Atvinnurekendur eru almennt hlynntir eflingu almenningssamgangna, en sakna þess að á þá sé hlustað við útfærsluna, t.d. á Suðurlandsbraut, þar sem blasir við að áform um þrengingu skaða hagsmuni fyrirtækja þar sem starfa um 5.000 manns. Leikskólamálin eru sömuleiðis hagsmunamál atvinnurekenda; það skiptir máli að vistunartími á leikskólum sé þannig að fólk nái að vinna fullan vinnudag.

Atvinnurekendur eru stór kjósendahópur og verðskuldar að á hann sé hlustað.

Nýjar fréttir

Innskráning