Átta aðgerðir til að stuðla að lægra matvöruverði

26.06.2026

Félag atvinnurekenda hefur brugðist við umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um matvöruverð frá því fyrr í mánuðinum. Þar kom fram að matvöruverð á Íslandi væri 55% hærra en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. FA setur fram rökstuddar ábendingar um átta aðgerðir sem myndu stuðla að lægra matvöruverði með því að lækka kostnað, fækka viðskiptahindrunum og auka samkeppni. FA leggur til eftirfarandi:

  1. Stefna ætti að norrænu vinnumarkaðsmódeli, þar sem launabreytingar eru ákvarðaðar út frá getu útflutningsgreina til að greiða laun. Umbætur á vinnumarkaði myndu jafnframt stuðla að hóflegri verðbólguvæntingum til lengri tíma, lægri verðbólgu og vaxtastigi. Í umsögn FA er bent á að bæði laun og vextir séu hærri hér á landi en í samanburðarlöndum og hærri kostnaður hækki að sjálfsögðu verðlag.
  2. Draga ætti úr tollvernd mjólkur- og kjötvara og beina stuðningi við bændur fremur í annan og síður markaðstruflandi farveg, líkt og gert var varðandi afurðir ylræktar í byrjun aldarinnar. Verðmunur á þessum vörum miðað við samanburðarlönd er mun meiri en á öðrum matvörum, enda tollar miklu hærri en t.d. í ESB.
  3. Efna ætti fyrirheit stjórnvalda um að bæta í beinan stuðning við útirækt á grænmeti, á móti niðurfellingu tollverndar. Það kæmi í veg fyrir að stundum leggist háir tollar á innflutt grænmeti, þótt engin innlend framleiðsla sé í boði.
  4. Setja ætti í lög viðmið um hvað teljist skortur á framboði innlendrar framleiðslu, sem bregðast megi við með tímabundinni tollalækkun á tiltekinni innfluttri matvöru. Stjórnvöld hafa hafnað beiðnum um að lækka t.d. tolla á eggjum þrátt fyrir augljósan skort og vísað til þess að ekki sé skilgreint í lögum hvað sé skortur.
  5. Fara ætti markvisst í gegnum tollskrána og afnema tolla af matvörum, sem ekki eru framleiddar á Íslandi. Ýmis dæmi eru um slíkt, það þekktasta líklega 46% tollur á franskar kartöflur, en þar er engri innlendri framleiðslu til að dreifa, sem tollar gætu verndað.
  6. Aðlaga ætti undanþágur mjólkur- og kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum að þeim ákvæðum, sem um slíkt gilda í rétti nágrannalandanna. Undanþágur ættu að takmarkast við félög í eigu og undir stjórn bænda og tryggja ætti virkt eftirlit samkeppnisyfirvalda með samrunum og óhóflega samkeppnishamlandi samrunum.
  7. Fyrirtækjum, sem nýta sér undanþágur frá samkeppnislögum, ætti að vera óheimilt að bjóða í tollkvóta fyrir búvörur. Innlendar afurðastöðvar hafa ástundað að bjóða hátt í tollkvótana til að hækka verð á innflutningi og hindra þannig samkeppni við sjálfar sig. Þannig stuðla þær að hærra matvöruverði.
  8. Breyta ætti fyrirkomulagi úthlutunar á tollkvóta fyrir búvörur. Úthluta ætti tollkvótunum án endurgjalds, t.d. með blöndu af hlutkesti og úthlutun sem byggist á viðskiptasögu. Útboðsgjald, sem innflytjendur greiða fyrir tollkvótana, hefur almennt hækkað undanfarin ár og þannig dregið úr mögulegum ávinningi neytenda af hinum tollfrjálsu innflutningskvótum.

Umsögn FA um umræðuskjalið í heild

Nýjar fréttir

Innskráning