Skattahækkanir – og ein lækkun

09.09.2026

„Endahnútur“ Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 9. september 2026

Ríkisfjármálin eru mikilvæg í baráttu við verðbólgu og háa vexti. Fjárlagafrumvarp sem gerir ráð fyrir hallalausum ríkisrekstri, eins og það sem lagt var fram í byrjun viku, ætti því að vera fagnaðarefni. Það veldur engu að síður vonbrigðum vegna þess hvernig jafnvæginu er náð. Aðhaldið á útgjaldahlið ríkissjóðs er alltof lítið, en þess í stað sóttar tekjur með verulegum skattahækkunum á fólk og fyrirtæki.

Krónutölugjöld ríkisins, þar með taldir til dæmis hæstu áfengisskattar á Vesturlöndum, eiga að hækka um 5,2% á næsta ári, þ.e. verðbólgu þessa árs, í stað þess að miða við verðbólgumarkmið Seðlabankans upp á 2,5%. Þetta gengur þvert á ábendingar Seðlabankastjóra og stuðlar í raun að því að viðhalda verðbólgunni og væntingum um að hún verði áfram há, þvert á hin yfirlýstu markmið fjárlagafrumvarpsins. Þetta sendir kolröng skilaboð, til dæmis inn á vinnumarkaðinn þar sem forsendur kjarasamninga kunna að vera í uppnámi vegna verðbólgunnar.

Hækkun kílómetragjalds upp á tæp 16% kemur sömuleiðis illa niður á fólki og fyrirtækjum og er líkleg til að hækka flutningskostnað og þar með vöruverð.

Eina skattalækkun boðar ríkisstjórnin þó; til stendur að breyta tollflokkun á pitsuosti með viðbættri jurtaolíu og snúa þannig við rúmlega sex ára gamalli ákvörðun fyrri ríkisstjórnar, sem braut bæði gegn EES-samningnum og skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um Alþjóðatollastofnunina. Alþjóðlegar reglur og viðmið voru þverbrotin til að tryggja einu fyrirtæki, Mjólkursamsölunni, vernd fyrir samkeppni. Rétt tollflokkun á þessari vöru mun koma almenningi til góða og ekki síður veitingarekstri, sem hefur barizt í bökkum.

Stjórnarandstaðan hefur réttilega gagnrýnt áformin um skattahækkanir. Það verður gott að eiga stuðning hennar vísan við skattalækkunina, sem felst í leiðréttingu á tollflokkuninni. 

Nýjar fréttir

Innskráning