Stjórn FA: Fjármálafrumvarpið veldur vonbrigðum

10.09.2026

Stjórn Félags atvinnurekenda ályktaði eftirfarandi á stjórnarfundi sínum í dag, 10. september 2026:

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 veldur vonbrigðum, þótt þar séu ýmsir ljósir punktar.

Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin ætli loksins að stöðva hallarekstur ríkissjóðs og sérstaklega jákvætt að ráðist sé í hagræðingu og fækkun stöðugilda. Jafnvægi í ríkisfjármálum er ein mikilvægasta forsenda lægri verðbólgu og vaxta. Það veldur hins vegar vonbrigðum að ríkisstjórnin skuli ekki ganga lengra í aðhaldi á útgjaldahliðinni og kjósi þess í stað að sækja tugi milljarða í nýjar álögur, meðal annars með hækkun kílómetragjalds og aukinni skattlagningu á atvinnulífið.

FA gagnrýnir harðlega þá aðferð að krónutölugjöld ríkisins hækki almennt um 5,2% og telur hana ýta undir verðbólgu og verðbólguvæntingar, þvert á markmið fjárlagafrumvarpsins. Nær hefði verið að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Bankinn leitast við að ná því markmiði, meðal annars með háum vöxtum, en á sama tíma notar ríkisstjórnin 5,2% verðbólgu sem viðmið við hækkun gjalda. Það sendir kolröng skilaboð, meðal annars inn á vinnumarkaðinn þar sem forsendur kjarasamninga geta verið í uppnámi vegna verðbólgunnar.

Enn meiri hækkun kílómetragjalds, um hátt í 16%, er líkleg til að auka rekstrarkostnað margra fyrirtækja og hækka kostnað við vörudreifingu, sem aftur getur leitt til hækkunar vöruverðs.

FA hefur lengi stutt að virðisaukaskattkerfið verði einfaldað og undanþágum fækkað, en þá er lykilatriði að skattprósentan lækki á móti. Félagið hvetur slíkrar til heildarendurskoðunar á kerfinu í stað smáskammtalækninga eins og þeirra sem lagðar eru til í frumvarpinu.

Að mati FA stendur aðhaldið á útgjaldahlið ríkissjóðs ekki undir þeim væntingum sem ríkisstjórnin skapaði í upphafi þegar hún sagðist ætla að berja niður vexti og verðbólgu og hagræða í ríkisrekstrinum. FA vekur athygli á því að áformuð 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu er aðeins um einn sjötti af þeirri árlegu starfsmannaveltu sem rannsóknir benda til að sé að jafnaði í opinberri þjónustu. Hún kann jafnframt að vera minni en sá fjöldi ríkisstarfsmanna sem lætur af störfum vegna aldurs á árinu. Því hefði átt að vera svigrúm til að setja mun metnaðarfyllra markmið um fækkun án þess að grípa þyrfti til umfangsmikilla uppsagna. Stöðugildum hjá ríkinu hefur fjölgað um 3.400 frá árinu 2019. Fjölgunin er hlutfallslega tvöföld á við mannfjöldaþróun. Spyrna þarf fastar við fótum til að vinda ofan af þessari ósjálfbæru þróun.

FA ítrekar fyrri tillögur sínar um

  • ráðningarstopp í stjórnsýslunni
  • afnám sérréttinda ríkisstarfsmanna, einkum uppsagnarverndar umfram það sem gerist á almennum vinnumarkaði
  • að frysta krónutölu áfengisskatta, sem eru þeir hæstu á Vesturlöndum
  • einföldun regluverks og afnám gullhúðunar Evrópureglna. Íþyngjandi kvaðir sem bætt er við EES-reglur skerða ekki aðeins samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja heldur útheimta þær fleiri stöðugildi og meiri kostnað hjá eftirlitsstofnunum
  • að minnka verulega umfang RÚV og hætta um leið ríkisstyrkjum til annarra fjölmiðla, leggja ÁTVR niður samfara breytingum á áfengislöggjöfinni og hætta niðurgreiðslum á undirverðlagðri samkeppnisstarfsemi Íslandspósts

Nýjar fréttir

Innskráning