Kaffikrókurinn: Enginn vafi á því hvernig dómsmál vegna bókunar 35 myndi fara

05.10.2026

Margrét Einarsdóttir, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti, telur einsýnt að Ísland tapi málinu, fari svo að EFTA-dómstóllinn dæmi í máli Eftirlitsstofnunar EFTA gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innleiðingar bókunar 35 við EES-samninginn. Þetta kemur fram í samtali Margrétar við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, í Kaffikróknum, hlaðvarpsþætti FA. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér að neðan eða hlusta á hann á Spotify.

Fólk og fyrirtæki geta ekki verið viss um að réttindi samkvæmt EES haldi
Í þættinum ræða Margrét og Ólafur uppruna bókunar 35 og þýðingu hennar fyrir skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum, til dæmis gagnvart bæði innlendum og erlendum fyrirtækjum sem starfa á hinu einsleita efnahagssvæði. Margrét segir að ekki hafi oft reynt á bókunina, þar sem íslensk lög séu alla jafna í samræmi við EES-samninginn, en í nokkrum dómsmálum hafi reynt á það hvort íslensk lög byggð á EES gangi framar öðrum íslenskum lögum. Niðurstaðan sé að einstaklingar og fyrirtæki geti ekki verið viss um að réttindi, sem þau eiga samkvæmt EES-samningnum, haldi fyrir íslenskum dómstólum.

Margrét bendir á að Hæstiréttur Íslands hafi í dómi sínum í fæðingarorlofsmálinu svokallaða fyrir tveimur árum bent á að bókun 35 væri ekki réttilega innleidd í íslensk lög. Jafnframt séu skýr dómafordæmi frá EFTA-dómstólnum, þannig að hún telji engan vafa á því hvernig dómsmál vegna bókunar 35 myndi fara.

Ekki einu sinni Baudenbacher gæti bjargað
Ólafur vitnar til orða stjórnmálamanna á borð við Guðlaug Þór Þórðarson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, sem vilja að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn og þar verði haldið uppi „fullum vörnum“ eins og sá fyrrnefndi orðar það, en sá síðarnefndi vill fá Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, til að sjá um varnir Íslands. Ólafur spyr: „Nú hafa íslensk stjórnvöld viðurkennt í samskiptum sínum við ESA skyldu sína til að lagfæra innleiðingu bókunar 35. Hæstiréttur er búinn að segja skýrt: Hún er ekki réttilega innleidd. Hvaða málsvörn væri eftir ef menn ætluðu að fara til EFTA-dómstólsins og halda uppi fullum vörnum, eins og menn segja núna?“

„Ég bara veit það ekki,“ segir Margrét. „Ég held að ekki einu sinni Carl Baudenbacher gæti bjargað okkur. Stundum eru hlutirnir bara ekki skoðun heldur staðreyndir. Ég var svo barnaleg að ég hélt, eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, að íslenskir stjórnmálamenn gætu sammælst um að nú þyrftum við að standa vörð um EES-samninginn.“

Nýjar fréttir

Innskráning