Félag atvinnurekenda, Grafía – stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum og Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ) hafa gengið frá samkomulagi um breyttar forsendur kjarasamninga aðila. Samkomulagið er samhljóða því sem FA undirritaði við VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna í síðustu viku og efnislega samhljóða samkomulagi sömu stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins.
Í samkomulaginu eru ákvæði um heimild til styttingar kjarasamninga aðila ef verðbólgan í október á næsta ári mælist yfir 4,3% á ársgrundvelli eða verðbólgan á sex mánaða tímabili þar á undan verður yfir 3,8% miðað við árshraða. Aðilar munu, þegar verðbólgumæling í október liggur fyrir, skoða undirliggjandi þætti verðbólgunnar og taka m.a. tillit til þess hvort innflutt verðbólga sé meginástæða þess að forsendur aðila stóðust ekki. Ef aðilar eru sammála um að sú sé raunin þá mun ekki koma til uppsagnar kjarasamninga eða þeir verða styttir minna en um tvo mánuði. Ef ekki næst samkomulag falla samningar úr gildi þann 30. nóvember 2027.
„Aðilar eru í ljósi þessa samkomulags og yfirlýsinga sem tengjast viðbrögum við forsendubresti kjarasamninga, sammála um að komið hafi fram fullnægjandi viðbragð vegna forsendubrestsins og því muni kjarasamningar aðila halda gildi sínu,“ segir í samkomulaginu.
Fram kemur í samkomulaginu að FA taki undir hvatningu Samtaka atvinnulífsins til fyrirtækja, að þau haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út gildistíma samninganna, og beinir henni til sinna félagsmanna.
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA, Jakob Tryggvason formaður RSÍ og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu undirrituðu samkomulagið á skrifstofu FA í dag.