Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld þurfa að gera meira til að stuðla að virkri samkeppni í sjóflutningum til og frá Íslandi. Í viðtali við Morgunblaðið í dag, 4. nóvember, segir hann helstu vandamálin felast í rekstrarfyrirkomulagi Sundahafnar, hægfara uppbyggingu hafnaraðstöðu og betri vegasamgangna til Þorlákshafnar og ógagnsærri verðlagningu skipafélaganna.
Ólafur segir tímabært að breyta rekstrarfyrirkomulagi Sundahafnar þannig að Faxaflóahafnir sjálfar eða óháður þriðji aðili annist þjónustu við skipafélögin í stað þess að stærstu skipafélögin ráði yfir aðstöðu og löndunarbúnaði. Hann hvetur stjórnvöld, þar á meðal innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir til að beita sér fyrir breytingunum.
Þá gagnrýnir hann frestun fjárveitinga á samgöguáætlun til hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn, þar sem Torcargo og Smyril Line Cargo hafa komið sér fyrir. Brýnt sé að bæta hafnaraðstöðu og vegasamgöngur til að styrkja samkeppnisstöðu félaganna.
Ólafur gagnrýnir jafnframt ógagnsæi í gjaldskrám stóru skipafélaganna og bendir á að olíu- og umhverfisgjöld virðist ekki alltaf vera í samræmi við raunverulegan kostnað. FA hafi hvatt félagsmenn til að krefja skipafélögin um rökstuðning og sundurliðun nýrra gjalda.
„Við vitum að flutningskostnaðurinn vegur þungt í vörustjórnunarkostnaði fyrirtækja og vöruverði til neytenda,“ segir Ólafur. Hann segir meginskilaboð FA þau að stjórnvöld hafi ekki verið nógu vakandi og verði að gera meira til að efla samkeppni á markaðnum. „Aðstæður á Íslandi eru vissulega óvenjulegar en það er með samkeppni sem menn eru knúnir til að leita leiða til að gera hlutina með hagkvæmari hætti,“ segir framkvæmdastjóri FA.
