FA krefur Fjársýsluna um aðskilnað samkeppnisrekstrar frá annarri starfsemi

03.11.2026

Félag atvinnurekenda fer fram á að Fjársýsla ríkisins skilji samkeppnisrekstur sinn á sviði innkaupa- og útboðsþjónustu fjárhagslega frá annarri starfsemi stofnunarinnar. FA óskar í erindi til Fjársýslunnar jafnframt eftir því að stofnunin veiti ýtarlegar upplýsingar um kostnað, verðlagningu og reikningsskil vegna samkeppnisrekstrarins. Félagið telur nauðsynlegt að tryggja að opinber stofnun geti ekki nýtt aðföng sem fjármögnuð eru af skattgreiðendum til að keppa við einkafyrirtæki á ójöfnum forsendum. FA hvetur jafnframt Samkeppniseftirlitið til að taka fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar Fjársýslunnar til athugunar.

FA hefur áður gert athugasemdir við að Fjársýslan taki að sér framkvæmd útboða fyrir aðra opinbera aðila en þær ríkisstofnanir sem henni er sérstaklega ætlað að þjóna samkvæmt lögum og reglugerðum. Þar á meðal eru sveitarfélög, Ríkisútvarpið og Happdrætti Háskóla Íslands. Í nýju erindi FA eru nefnd fleiri dæmi um útboð sem Fjársýslan hefur auglýst fyrir þessa aðila á undanförnum mánuðum, meðal annars vegna skólaaksturs í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit, auglýsingaþjónustu fyrir Happdrætti Háskóla Íslands, vátrygginga fyrir RÚV og hreinsunar rotþróa fyrir Hvalfjarðarsveit.

Ekki nóg að vísa til lagaheimilda
Í svari við erindi FA hefur Fjársýslan haldið því fram að henni sé heimilt að veita þessa þjónustu og að hún raski ekki samkeppni. Stofnunin hefur meðal annars bent á að hún taki verkefnin að sér að beiðni viðkomandi kaupenda, þegar svigrúm sé til staðar, og að þjónustan sé hvorki auglýst né markaðssett. FA telur þessi sjónarmið ekki svara þeirri grundvallarspurningu hvernig tryggt sé að þjónustan njóti ekki beinna eða óbeinna niðurgreiðslna úr öðrum rekstri Fjársýslunnar.

Einkafyrirtæki sem bjóða útboðsþjónustu þurfa að standa undir öllum kostnaði við starfsemi sína, þar á meðal launum, húsnæði, upplýsingakerfum, stjórnun og sérfræðiþjónustu. Sömu kostnaðarþættir verða að reiknast með þegar opinber stofnun veitir sambærilega þjónustu. Þótt Fjársýslan taki verkefni að sér þegar starfsfólk hennar hefur svigrúm breytir það ekki því að aðstaða, kerfi og starfsfólk stofnunarinnar eru fjármögnuð af opinberu fé.

Krafa um sjálfstæð reikningsskil og gagnsæi
FA hefur óskað eftir ítarlegum upplýsingum frá Fjársýslunni um umfang útboðsþjónustu hennar, tekjur og gjöld, kostnaðarskiptingu, gjaldtöku og verðlagningu. Félagið krefst þess jafnframt að samkeppnisreksturinn verði afmarkaður sérstaklega og að sjálfstæð reikningsskil hans verði gerð opinber. Verði ekki þegar tryggður fullnægjandi fjárhagslegur aðskilnaður er þess krafist að Fjársýslan leggi fram tímasetta áætlun um úrbætur.

FA vísar meðal annars til nýlegra bréfa Samkeppniseftirlitsins vegna samkeppnisrekstrar Veðurstofu Íslands og háskóla sem fjármagnaðir eru af opinberu fé. Þar hefur eftirlitið áréttað mikilvægi þess að fjárhagslegur aðskilnaður sé raunverulegur og gagnsær og að hægt sé að sannreyna að samkeppnisrekstur njóti ekki niðurgreiðslna úr verndaðri starfsemi.

Óskað eftir athugun Samkeppniseftirlitsins
Í sérstöku erindi til Samkeppniseftirlitsins óskar FA eftir því að kannað verði hvort tilefni sé til að mæla fyrir um fjárhagslegan aðskilnað hjá Fjársýslunni samkvæmt 14. gr. samkeppnislaga og eftir atvikum grípa til annarra ráðstafana til að tryggja jafnræði á markaði. FA leggur áherslu á að heimild opinberrar stofnunar til að veita tiltekna þjónustu leysi hana ekki undan þeim kröfum sem gera verður til fjárhagslegs aðskilnaðar þegar þjónustan er veitt í samkeppni við einkafyrirtæki.

Félagið hefur óskað eftir skriflegu svari Fjársýslunnar innan 20 virkra daga og upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu um hvort það hyggist taka málið til formlegrar athugunar.

Erindi FA til Fjársýslunnar
Erindi FA til Samkeppniseftirlitsins

Nýjar fréttir

Innskráning