Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið boða til opins félagsfundar miðvikudaginn 10. júní kl. 08:30 – 10 í húsakynnum Félags atvinnurekenda í Skeifunni 11b.

Hallgrímur Oddsson, hagfræðingur og stofnandi Evrópustrauma, kynnir á fundinum helstu niðurstöður nýrrar skýrslu sem fjallar um mögulega aðild Íslands að ESB og áhrif hennar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja með tilliti til tollaumhverfis, markaðsaðgengis, fyrirkomulags gjaldmiðlamála, vaxta- og fjármögnunarkostnaðar fyrirtækja og lagaumhverfis. Skýrslan var unnin fyrir FA og ÍEV. Friðrik Ingi Friðriksson, formaður FA, flytur inngangsorð. Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og ÍEV.
Í skýrslunni er m.a. fjallað um:
· Tollamál á Íslandi og innan ESB
· Samanburð á fríverslunarsamningum Íslands og ESB
· Netverslun í Evrópu og á Íslandi
· Kosti og galla krónu og evru
· Maastricht-skilyrðin
· Vaxtaumhverfi fyrirtækja á Íslandi og í ESB
· Pólitíska stefnumótun í Evrópu í dag og áhrif hennar á EES-samninginn
Skýrslunni er ætlað að vera innlegg í þá umræðu sem fara mun fram næstu mánuði, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka skuli upp á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Henni er ætlað að draga fram bæði kosti og galla, tækifæri og áskoranir hvað varðar Evrópusambandið og rekstrarumhverfi fyrirtækja og auðvelda þannig félagsmönnum samtakanna og öðrum atvinnurekendum að afla sér upplýsinga. Hvorki FA né ÍEV taka neina afstöðu til framhalds aðildarviðræðna, heldur vilja stuðla að upplýstri umræðu.
Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir en skráning er nauðsynleg hér að neðan. Léttur morgunverður er í boði.