FA og stéttarfélögin funda með fjármálaráðherra um tollalækkanir

07.02.2023

Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda áttu í gær fund með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra til að ræða tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda. Fundurinn kemur í kjölfar fundar samtakanna með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í síðustu viku og boðuðu báðir ráðherrar að þau myndu í framhaldi af fundunum skoða í sameiningu hvaða möguleikar væru í stöðunni.

Gerðar voru bókanir við kjarasamninga FA og stéttarfélaganna í desember síðastliðnum, sem kveða á um að samtökin muni í sameiningu beita sér gagnvart stjórnvöldum til að knýja á um lækkun tolla, sem sé ein skilvirkasta leiðin til að bæta hag launþega. Í framhaldinu var farið fram á fundi með ráðherrunum. Bæði Svandís og Bjarni tóku þeirri málaleitan vel og boðuðu samtökin til fundar.

FA og stéttarfélögin bentu á að verðbólga hefði aukist á ný. Leita þyrfti allra leiða til að stemma stigu við henni og varðveita þannig þær kjarabætur sem um samdist í kjarasamningunum. Fyrir ráðherrunum hafa verið kynntar þrjár tillögur, sem allar eru byggðar á eldri tillögum Samkeppniseftirlitsins og Samráðsvettvangs um aukna hagsæld:

Frá fundinum í fjármálaráðuneytinu. Frá vinstri: Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, varaformaður VR, Georg Páll Skúlason formaður Grafíu, Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ og Alþýðusambands Íslands, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA, Guðrún Ragna Garðarsdóttir formaður FA, Steinar Örn Steinarsson og Helga Jónsdóttir frá skattaskrifstofu fjármálaráðuneytisins og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
  • Tollar verði felldir niður af alifugla- og svínakjöti og frönskum kartöflum. Tollar falli niður af blómum sem ekki eru ræktuð á Íslandi. Tollar á t.d. túlipönum og rósum falli niður á tímabilum þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn.
  • Innlendum afurðastöðvum búvöru og vinnslustöðvum í þeirra eigu verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2012. Skoðaðar verði leiðir til að úthluta tollkvótum án endurgjalds, sbr. sömu tillögur.
  • Tollar á mjólkur- og undanrennudufti og smjöri falli niður, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2015.

Nýjar fréttir

Innskráning