FA skrifar rektor HÍ: Endurmenntun verði aðskilin öðrum rekstri

03.07.2025

Félag atvinnurekenda hefur sent nýjum rektor Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur, erindi og farið fram á að rektor sjái til þess að HÍ uppfylli ákvæði samkeppnislaga og tilmæli stjórnvalda með því að rekstur Endurmenntunar HÍ verði bókhalds- og stjórnunarlega aðskilinn öðrum rekstri skólans. Endurmenntun ástundar harða samkeppni við einkarekin fyrirtæki á sviði endur- og símenntunar. Í erindi FA kemur fram að vegna skorts á fjárhagslegum aðskilnaði hafi einkareknir keppinautar Endurmenntunar enga sönnun þess að reksturinn sé ekki í raun niðurgreiddur með fjárframlögum skattgreiðenda til HÍ.

Ekki farið að lögum og tilmælum Samkeppniseftirlitsins
Í erindi FA er vitnað til 14. greinar samkeppnislaga, sem kveður á um að Samkeppniseftirlitið (SE) geti mælt fyrir um að samkeppnisrekstur opinberra stofnana sé aðgreindur frá öðrum rekstri og ekki niðurgreiddur af starfsemi sem njóti einkaleyfis eða verndar. Jafnframt er vitnað til bréfs SE til þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis árið 2021, en eftirlitið mæltist þá til þess við ráðuneytið að það færi þess á leit við opinberu háskólana að þeir birtu opinberlega upplýsingar um hvernig fjárhagslegum aðskilnaði er háttað á milli annars vegar þess rekstrar sem rekinn er að hluta til eða öllu leyti af opinberu fé og hins vegar þeirrar starfsemi sem er í frjálsri samkeppni við aðra aðila, sbr. áðurnefnda 14. grein samkeppnislaga. „Að mati Samkeppniseftirlitsins er eðlilegt að fagráðuneyti málaflokksins geri kröfu um þetta í samhengi við fjárveitingar til viðkomandi skóla,“ sagði í erindi SE.

Í erindi FA er því jafnframt lýst að einu viðbrögð HÍ voru þau, eftir áralangan eftirrekstur FA, að birta eftirfarandi klausu á vef háskólans: „„Rekstur Endurmenntunar HÍ byggir eingöngu á eigin tekjum, þ.e. námskeiðsgjöldum. Endurmenntun HÍ nýtur engra opinberra fjárframlaga.“

„Að mati FA eru þetta allsendis ófullnægjandi viðbrögð af hálfu HÍ,“ segir í erindi FA. „Endurmenntun er rekin á sömu kennitölu og HÍ, engin grein er gerð fyrir rekstri hennar sérstaklega í ársreikningi HÍ og ekkert sérstakt rekstraryfirlit er birt. Þegar sagt er að Endurmenntun njóti engra opinberra fjárveitinga vantar alveg að gerð sé grein fyrir því í rekstraryfirliti, sem er aðgengilegt fyrir keppinauta Endurmenntunar, hvernig t.d. aðgangur hennar að húsnæði, yfirstjórn, markaðssetningu og vörumerki Háskóla Íslands er verðlagður. Einkarekin fræðslufyrirtæki, sem Endurmenntun keppir grimmt við, hafa þannig enga sönnun þess að reksturinn sé ekki í raun niðurgreiddur með fjárframlögum skattgreiðenda til HÍ.“

Umfang samkeppnisrekstrar langt umfram viðmið stjórnvalda
FA vekur einnig athygli rektors á stefnu og leiðbeiningum fjármálaráðuneytins um fjárhags- og stjórnunarlegan aðskilnað samkeppnisrekstrar opinberra aðila. Í stefnunni, sem gefin var út 1997, segir: „Ef tekjur stofnunar af samkeppnisrekstri eru hærri en 50 m.kr. eða markaðshlutdeild hans er meiri en 15% af skilgreindum markaði, skal eiga sér stað fjárhagslegur og stjórnunarlegur aðskilnaður milli samkeppnisrekstrarins og annarrar starfsemi stofnunarinnar.“

Sé 50 milljóna króna talan framreiknuð til dagsins í dag eru það um 180 milljónir króna. Í ársreikningi HÍ árið 2013 var sagt frá því í skýringum að tekjur HÍ af endurmenntun það ár hefðu numið 470 milljónum, en engar slíkar upplýsingar hafa verið birtar undanfarin ár þannig að ekki liggur fyrir hvert umfang rekstrarins er. FA dregur þó í efa að tekjurnar hafi dregist saman.

Greinargóðar og sannreynanlegar upplýsingar verði birtar
Rifjað er upp að engin svör bárust frá rektor eða öðrum frambjóðendum til rektorsembættisins þegar framkvæmdastjóri FA skrifaði þeim tvö opin bréf í febrúar og mars síðastliðnum, þegar rektorskjör stóð yfir, og óskaði eftir afstöðu þeirra til samkeppnishátta HÍ. „FA leyfir sér engu að síður að trúa því ekki að óreyndu að rektor vilji hunza samkeppnislöggjöfina, tilmæli Samkeppniseftirlitsins og stefnu og leiðbeiningar stjórnvalda um fjárhagslegan og stjórnunarlegan aðskilnað samkeppnisrekstrar frá öðrum rekstri,“ segir í erindi félagsins. „FA fer þess eindregið á leit við rektor að hún beiti sér fyrir því að greinargóðar og sannreynanlegar upplýsingar um rekstrar- og stjórnunarlegan aðskilnað Endurmenntunar HÍ frá annarri starfsemi skólans verði birtar opinberlega.“

Erindi FA til rektors HÍ

Nýjar fréttir

2. júlí 2025

Innskráning