FA styður frumvarp um að draga úr uppsagnarvernd opinberra starfsmanna

09.11.2022

Félag atvinnurekenda styður frumvarp nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Megintillaga frumvarpsins er sú að fellt verði niður það skilyrði fyrir uppsögn opinbers starfsmanns að honum hafi áður verið veitt formleg áminning vegna brots á starfsskyldum eða að hann hafi ekki staðið undir þeim kröfum sem leiða af starfi hans.

Í umsögn FA um frumvarpið segir að nauðsynlegt sé að afnema þá tvískiptingu vinnumarkaðarins sem felist í mismunandi vinnulöggjöf fyrir opinbera starfsmenn og starfmenn á almennum markaði. Þessi tillaga sé gott skref í þá átt.

Gjörbreytt réttarstaða frá 1954
Félagið bendir á að ein forsendan fyrir sveigjanleika í starfsmannahaldi hins opinbera og þar með ráðdeild og skilvirkni sé að réttarstaða opinberra starfsmanna sé sem líkust réttarstöðu starfsmanna hjá einkafyrirtækjum. Einnig er tekið undir það með flutningsmönnum að á þeim tíma sem liðinn er frá því lög voru sett um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins árið 1954 hefur réttarstaða opinberra starfsmanna gjörbreyst. Þeir hafa samnings- og verkfallsrétt. Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hafa verið samræmd til framtíðar. Starfsmenn hins opinbera hafa notið meiri launahækkana undanfarin ár en starfsmenn á almennum vinnumarkaði og útfærsla styttingar vinnuvikunnar í síðustu kjarasamningum var mun rausnarlegri á opinbera markaðnum en þeim almenna. Að mati félagsmanna FA veita stofnanir ríkis og sveitarfélaga þeim nú harða samkeppni um starfsfólk, sérstaklega sérfræðinga og millistjórnendur, og verður ekki séð að opinberir starfsmenn í þeim stöðum njóti lakari kjara en starfsfólk á almennum markaði.

Hinn mjúki og hlýi faðmur ríkisins
FA vísar til kannana á meðal forstöðumanna ríkisstofnana sem hafa ítrekað sýnt að þeir telja lögin um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins standa í vegi fyrir skilvirkni, hagræðingu og bættri þjónustu í opinberum rekstri. Hin ríka uppsagnarvernd opinberra starfsmanna sé á kostnað skilvirkni í rekstrinum. Mjög neikvæð viðhorf ríki innan opinbera geirans í garð áminninga og uppsagna og í raun sé ómögulegt
að segja starfsfólki upp nema það geri alvarleg mistök í starfi – eða þá að starfið sé lagt niður vegna
skipulagsbreytinga.

„Þannig mun vera afar óalgengt að opinber starfsmaður fái áminningu fyrir að vera verklítill, jafnvel þótt við blasi að aðrir gætu afkastað mun meira í starfinu. Margar opinberar stofnanir sitja þannig uppi með starfsfólk sem stendur sig ekki, en geta ekki losnað við það,“ segir í umsögn FA sem Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri undirritar. „Ekki er þar með sagt að starfsfólkið sé ómögulegt; það hefur bara minni hvata en starfsmenn á almennum markaði til að standa sig af því að faðmur ríkisins er svo mjúkur og hlýr. Atvinnurekendur forðast yfirleitt uppsagnir í lengstu lög, en stundum er uppsögn í starfi það sem starfsmaður þarf til að hugsa sinn gang og taka sig á áður en leitað er að nýju starfi. Þannig gerast kaupin á eyrinni á almenna markaðnum og vandséð er af hverju aðrar reglur ættu að gilda á opinbera markaðnum, að teknu tilliti til þeirrar þróunar í kjörum og réttindum sem að ofan er lýst.“

Opinberum starfsmönnum fjölgar hraðar en starfsfólki á almennum markaði
Í umsögn FA er bent á að þau vandamál sem fylgja uppsagnarverndinni á opinbera markaðnum verði enn meira íþyngjandi fyrir samfélagið en ella þegar horft sé til þeirrar staðreyndar, sem flutningsmenn benda á, að opinberi vinnumarkaðurinn stækkar hratt, á kostnað þess almenna. Þannig hefur launafólki í opinberum greinum fjölgað um 19% á fimm árum, samanborið við 5% fjölgun í öðrum greinum hagkerfisins.

Nýjar fréttir

31. október 2024

Innskráning