FA vill breiða endurskoðun á löggjöf um áfengi

31.10.2014

Félag atvinnurekenda hefur sent Alþingi umsögn um frumvarp Vilhjálms Árnasonar og fleiri þingmanna um afnám ríkiseinkasölu á áfengi.

 

FA fagnar viðleitni flutningsmanna frumvarpsins til að auka frjálsræði í viðskiptum með áfengi. Sömuleiðis fagnar félagið þeirri afstöðu sem fram kemur í frumvarpinu og greinargerð þess að efla eigi forvarnir gegn misnotkun áfengis.

 

FA telur nálgun frumvarpsins hins vegar alltof þrönga. Á því eru alvarlegir annmarkar, sem hafa í för með sér að verði það samþykkt óbreytt mun það á sumum sviðum þýða afturför hvað varðar aðgengi neytenda að þeirri neyzluvöru sem áfengi er. Óbreytt myndi frumvarpið jafnframt hafa í för með sér afar íþyngjandi breytingar fyrir bæði framleiðendur og innflytjendur áfengis, sem á endanum myndu koma niður á samkeppni, fjölbreytni, vöruframboði og verði á áfengismarkaði.

 

FA leggur því til að frumvarpið verði ekki samþykkt óbreytt, heldur verði málið tekið upp að nýju og horft til mun fleiri þátta en þegar þetta frumvarp var samið. Markmiðum um aukið frjálsræði í viðskiptum með áfengi verður ekki náð fram nema á grundvelli miklu breiðari endurskoðunar á lagagrundvelli sölu og markaðssetningar á áfengum drykkjum. FA telur vænlegra að endurskoða kerfið í heild, í stað þess að uppfæra einstaka hluta þess með tilheyrandi ósamræmi og óhagræði.

 

Á meðal athugasemda og ábendinga FA eru þessar:

 

  • Vinnur gegn nýliðun og fjölbreytni. Órökrétt er að færa smásölu áfengis út í matvöruverzlanir án þess að afnema um leið núverandi bann við áfengisauglýsingum. Með frumvarpinu er lagt til að færa smásölu áfengis úr einokunarumhverfi í fákeppnisumhverfi matvörumarkaðarins. Gera má ráð fyrir að fáir stórir aðilar á matvörumarkaðnum muni ráða miklu um hvaða vörur seljast. Vegna auglýsingabannsins nytu framleiðendur og innflytjendur ekki lengur þess jafnræðis sem ÁTVR hefur verið skyldað til að viðhafa gagnvart birgjum, en ættu hins vegar enga möguleika á að kynna vörur sínar sjálfstætt fyrir neytendum. Þetta kæmi sérstaklega hart niður á smærri framleiðendum, sem reyna að koma nýjum vörum á markað. Þetta atriði myndi vega á móti meintum jákvæðum áhrifum frumvarpsins og t.d. halla verulega á hagsmuni smærri brugghúsa á landsbyggðinni. FA hefur áður lagt til að auglýsingabannið verði afnumið og áfengisauglýsingar leyfðar með skýrum takmörkunum. Um leið myndu innflytjendur og framleiðendur áfengis undirgangast ýtarlegar siðareglur um ábyrga markaðssetningu, með siðanefnd á vegum FA, sem hefði skýrar valdheimildir, meðal annars til fjársekta, til að taka á brotum á reglunum.

 

  • Mismunun. Engin málefnaleg rök eru fyrir því að mismuna áfengistegundum með því að loka sterkt áfengi inni á bak við eða undir búðarborðum. Slík breyting er afturför og kæmi ekki sízt niður á hagsmunum innlendra framleiðenda sterkra drykkja, sem eru háðir því að koma vöru sinni á innanlandsmarkað áður en horft er til útflutnings. Í samhengi við auglýsingabannið er þeim augljóslega gert erfiðara fyrir með því að hindra að vörur þeirra séu aðgengilegar í hillum verzlana.

 

  • Áfengisgjald. Misskilnings gætir í frumvarpinu um hverjir standa skil á áfengisgjaldi til ríkisins. Það eru innflytjendur og framleiðendur, en ekki ÁTVR. Samkvæmt núgildandi fyrirkomulagi standa birgjar skil á áfengisgjaldi tvisvar í mánuði og ÁTVR greiðir vörurnar sömuleiðis skilvíslega tvisvar í mánuði. Á almennum smásölumarkaði er hins vegar algengt að birgjar veiti smásölunni gjaldfrest í allt að 60 daga. Ef þeim er engu að síður gert að greiða áfengisgjaldið (sem getur numið allt að 80% af verði vörunnar) strax, hefur það gífurlega neikvæð áhrif á sjóðstreymi og rekstrarhæfi, ekki sízt smærri fyrirtækja. FA leggur áherzlu á að verði sala áfengis færð til smásöluverzlunarinnar, verði það jafnframt hún sem standi skil á áfengisgjaldinu.

 

  • Hvaða verzlanir mega selja áfengi? Tillögur frumvarpsins um hvaða verzlanir megi selja áfengi og hverjar ekki eru tilviljanakenndar og óljósar. Þá er óljóst hvort gert er ráð fyrir sérverzlunum með áfengi, sem eru þó algjör forsenda þess að neytendur hafi áfram aðgang að breiðu vöruúrvali og sérfræðiþjónustu við kaup á áfengi.

 

  • Alltof lítill fyrirvari. Óraunhæft er að breytt lög taki gildi um áramót. Breytingin þarf talsvert lengri aðlögunartíma.

 

Umsögn FA um áfengisfrumvarpið í heild

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning