FA mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði

22.10.2026

Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um svokallaða leigubremsu skuli einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Félagið telur engin fullnægjandi rök hafa verið færð fyrir því að skerða samningsfrelsi fyrirtækja um leigu atvinnuhúsnæðis og varar við neikvæðum áhrifum á fjárfestingar, atvinnurekstur og verðlag. Þetta kemur fram í umsögn FA um frumvarpið, sem send hefur verið velferðarnefnd Alþingis.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að reglubundnar leiguhækkanir megi ekki eiga sér stað oftar en einu sinni á tólf mánaða fresti og að þær megi ekki vera umfram hækkun vísitölu neyzluverðs. Þessar takmarkanir eiga ekki aðeins að gilda um íbúðarhúsnæði heldur einnig að hluta til um atvinnuhúsnæði. Jafnframt er lagt til að afnema að hluta þá heimild sem nú er í húsaleigulögum til að víkja frá ákvæðum laganna í samningum um atvinnuhúsnæði.

Rökstuðning fyrir skerðingu samningsfrelsis skortir
FA bendir á að markmið frumvarpsins lúti fyrst og fremst að húsnæðisöryggi einstaklinga og fjölskyldna, fyrirsjáanleika í húsnæðiskostnaði heimila og forsendum kjarasamninga. Þessi sjónarmið skýri hins vegar ekki hvers vegna nauðsynlegt sé að takmarka samningsfrelsi fyrirtækja á atvinnuhúsnæðismarkaði. Leigusamningar um atvinnuhúsnæði séu afar fjölbreyttir og oft gerðir til margra ára. Þeir geti tekið mið af sérstökum fjárfestingum, framkvæmdum, viðhaldi og áhættuskiptingu milli leigusala og leigutaka.

Í umsögninni er sérstaklega bent á að takmarkanirnar geti komið niður á fyrirtækjum sem leigja atvinnuhúsnæði. Algengt sé að samið sé um lægri leigu fyrstu starfsár fyrirtækis, sem hækki síðan í þrepum þegar reksturinn hefur fest sig í sessi. Lögbundið hámark leiguhækkana geti torveldað slíka samninga og leitt til hærri upphafsleigu. Þá geti takmarkanir á leiguhækkunum skapað hvata til að gera styttri leigusamninga. Það geti dregið úr vilja fyrirtækja til að fjárfesta í húsnæði, innréttingum og búnaði og aukið óvissu í rekstri þeirra.

Áhrif á sjóðstreymi og fjárfestingar
FA varar einnig við áhrifum frumvarpsins á fasteignafélög sem eiga og reka atvinnuhúsnæði. Mánaðarleg vísitölutenging leigu sé víða mikilvæg forsenda sjóðstreymis og fjármögnunar. Takmörkun leiguhækkana við eitt skipti á ári geti dregið úr leigutekjum innan ársins, jafnvel þótt leigufjárhæðin verði sú sama í lok tímabilsins. Félagið gerir jafnframt athugasemdir við óvissu um áhrif gildistökuákvæða frumvarpsins á eldri langtímasamninga, einkum þegar þeir eru framlengdir samkvæmt áður umsömdum skilmálum.

Vafasamt fordæmi
FA telur að samþykkt frumvarpsins óbreytts gæfi vafasamt fordæmi um inngrip stjórnvalda í verðmyndun og viðskiptasambönd fyrirtækja. Gera verði ríkar kröfur til rökstuðnings og mats á efnahagslegum áhrifum þegar stjórnvöld hyggjast skerða samningsfrelsi með þessum hætti. Félagið leggur því til að fallið verði frá þeim breytingum frumvarpsins sem skerða samningsfrelsi um atvinnuhúsnæði.

FA gerir jafnframt athugasemdir við fyrirhugað vísitöluþak á leiguhækkanir íbúðarhúsnæðis, enda geti slíkar takmarkanir haft neikvæð áhrif á framboð leiguhúsnæðis og fjárfestingar. FA gagnrýnir að í greinargerð frumvarpsins sé ekkert fjallað um reynsluna af svipaðri leigustýringu erlendis, sem hafi víða haft slík neikvæð áhrif. Félagið gerir hins vegar ekki grundvallarathugasemdir við það markmið að reglubundnar breytingar á leigu íbúðarhúsnæðis eigi sér stað með hæfilegu millibili.

Umsögn FA í heild

Nýjar fréttir

Innskráning