FA vill heildarendurskoðun á eftirliti með póstmarkaði

22.10.2026

Félag atvinnurekenda telur að endurskoða þurfi frá grunni fyrirkomulag eftirlits með póstmarkaði, í ljósi alvarlegra annmarka sem komið hafa fram á eftirliti Byggðastofnunar. Félaginu kemur spánskt fyrir sjónir að í greinargerð nýs stjórnarfrumvarps sé fullyrt að stofnunin hafi sinnt skyldum sínum „með ágætum“, enda hafi FA ítrekað komið á framfæri alvarlegum athugasemdum við eftirlitið, meðal annars á fundum með innviðaráðherra og æðstu stjórn innviðaráðuneytisins og jafnframt í erindum til Byggðastofnunar sjálfrar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Þetta kemur fram í umsögn FA til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um frumvarp til breytinga á lögum um Byggðastofnun. Frumvarpið felur meðal annars í sér að eftirlit stofnunarinnar með póstmarkaði verði gert sjálfstæðara gagnvart ráðherra og stjórn stofnunarinnar, til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). FA gerir ekki athugasemdir við markmiðið um aukið sjálfstæði eftirlitsaðilans, en telur að ekki sé nóg að breyta stjórnsýslulegri stöðu hans án þess að taka á þeim annmörkum sem komið hafa í ljós í starfsemi Byggðastofnunar.

Fullyrðing ráðuneytisins kemur á óvart
Í greinargerð frumvarpsins segir að ekki verði „annað séð en að stofnunin hafi sinnt sínum skyldum með ágætum frá því að hún tók við póstmálefnum.“ FA mótmælir þessu mati eindregið. Félagið hefur meðal annars gert alvarlegar athugasemdir við eftirlit Byggðastofnunar með gjaldskrám Íslandspósts, útreikning fjárframlaga úr ríkissjóði vegna alþjónustuskyldu og skort á samráði við Samkeppniseftirlitið. Þá hefur úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála staðfest alvarlega annmarka á málsmeðferð Byggðastofnunar. Í marz 2025 felldi nefndin úr gildi ákvörðun stofnunarinnar um breytingar á afsláttarskilmálum Íslandspósts fyrir magnpóst, meðal annars vegna þess að rannsókn málsins hafði verið ófullnægjandi. FA telur að sú niðurstaða ein og sér gefi tilefni til að fara rækilega yfir starfshætti og faglega getu Byggðastofnunar.

Milljarðahagsmunir í húfi
Í umsögninni er jafnframt bent á að eftirlit með póstmarkaði varði mikla fjárhagslega hagsmuni. Á þessu ári nemur framlag skattgreiðenda til Íslandspósts hátt í 800 milljónum króna. FA hefur gert alvarlegar athugasemdir við hvernig Byggðastofnun reiknar út fjárframlög vegna alþjónustuskyldu og telur hættu á að tap vegna undirverðlagningar á samkeppnismörkuðum sé í reynd bætt með fé skattgreiðenda. Félagið hefur kvartað til ESA vegna þess sem það telur ólögmæta ríkisaðstoð til Íslandspósts. Niðurstöðu ESA í málinu er vænzt í apríl næstkomandi.

Hvað varð um fyrirheit ráðuneytisins frá 2021?
FA minnir jafnframt á að þegar eftirlit með póstmarkaði var flutt frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar árið 2021 varaði félagið eindregið við breytingunni. Meðal annars var bent á mögulega togstreitu milli hlutverks Byggðastofnunar við framkvæmd byggðastefnu stjórnvalda og þess að sinna hlutlægu eftirliti með samkeppni og að sérfræðiþekking og reynsla myndi glatast.

Í greinargerð frumvarpsins frá 2021 boðaði ráðuneytið að skoðaður yrði fýsileiki þess að færa þann hluta póstmála sem varðar samkeppniseftirlit til Samkeppniseftirlitsins. FA hefur ekki séð þess merki að þeirri vinnu hafi verið lokið eða niðurstöður hennar kynntar. Félagið skorar því á Alþingi að kalla eftir upplýsingum um hvað hafi orðið af þessari athugun. Hafi henni ekki verið lokið verði það gert áður en frekari ákvarðanir eru teknar um fyrirkomulag pósteftirlitsins.

Í umsögninni er bent á að umtalsverð skörun sé á starfssviði Byggðastofnunar og Samkeppniseftirlitsins hvað varðar samkeppni á póstmarkaði. Því sé full ástæða til að skoða hvort eftirlitinu sé betur fyrir komið hjá síðarnefndu stofnuninni, að hluta eða öllu leyti. „Markmiðið hlýtur að vera að tryggja sjálfstætt, faglegt og skilvirkt eftirlit með póstmarkaði, en ekki að festa núverandi fyrirkomulag í sessi án þess að fyrir liggi mat á því hvort það hafi reynzt vel,“ segir í niðurlagi umsagnar FA.

Umsögn FA í heild

Nýjar fréttir

Innskráning