Félag atvinnurekenda (FA) varar við því að innleiðing nýs aðlögunarkerfis við landamæri vegna kolefnis (CBAM) geti lagt gríðarlegar stjórnsýslubyrðar og aukinn kostnað á innlenda heildverslun og innflytjendur. Afleiðingarnar geti orðið minni samkeppni og hærra verð á byggingarefnum, tæknibúnaði og öðrum mikilvægum aðföngum. Félagið fer fram á að lögfestur verði að lágmarki 24 mánaða aðlögunarfrestur.
Þetta kemur fram í umsögn FA um stjórnarfrumvarp um innleiðingu CBAM-kerfisins, sem er til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
CBAM (Carbon Border Adjustment Mechanism) er kerfi Evrópusambandsins sem ætlað er að koma í veg fyrir svonefndan kolefnisleka, þ.e. að framleiðsla flytjist frá ríkjum með strangar loftslagsreglur til ríkja þar sem minni kröfur eru gerðar til losunar gróðurhúsalofttegunda. Kerfið felur í sér að kolefnisgjald er lagt á innflutning tiltekinna vara frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, meðal annars stáls, áls, sements, áburðar og margs konar byggingarvara úr málmi, með hliðsjón af þeirri kolefnislosun sem verður við framleiðslu þeirra. Markmiðið er að jafna samkeppnisstöðu innfluttra vara og vara sem framleiddar eru innan EES og falla undir evrópska viðskiptakerfið með losunarheimildir (ETS), jafnframt því að hvetja til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda.
FA styður almenn markmið um loftslagsvernd og skilur þær alþjóðlegu skuldbindingar sem liggja að baki innleiðingu regluverksins á grundvelli EES-samningsins. Félagið gagnrýnir hins vegar að við undirbúning frumvarpsins hafi fyrst og fremst verið horft til stóriðju og álvera en áhrifin á heildverslun, innflytjendur og dreifingaraðila verið vanmetin.
Þúsundir vörunúmera og óraunhæfar kröfur
Í umsögninni er bent á að fyrirtæki sem flytja inn tæknibúnað, lagnir, festingar og byggingarvörur haldi utan um þúsundir vörunúmera sem falli undir CBAM-kerfið, jafnvel 8.000–9.000 virk vörunúmer hjá einum innflytjanda.
Kerfið geri ráð fyrir að innflytjendur afli upplýsinga um kolefnislosun við framleiðslu hverrar vöru. Örðugt geti reynst að afla slíkra upplýsinga, ekki síst frá stórum framleiðendum utan Evrópu sem hafi lítinn hvata til að sinna fyrirspurnum frá smáum íslenskum viðskiptavinum.
„Að ætlast til þess að innlend heildverslun haldi úti sérstöku kolefnisbókhaldi, afli framleiðslugagna og reikni út innbyggða losun fyrir þúsundir ólíkra vörunúmera er óraunhæf stjórnsýslubyrði,“ segir í umsögn FA.
Félagið bendir á að þegar upplýsingar frá framleiðendum liggi ekki fyrir þurfi innflytjendur að styðjast við sjálfgefin viðmiðunargildi Evrópusambandsins, sem FA telur geta leitt til verulegrar og óréttmætrar kostnaðarhækkunar.
Tvöföld tollflokkun og óundirbúin stjórnsýsla
FA gagnrýnir jafnframt ákvæði frumvarpsins um að innflytjendur þurfi að skrá evrópsk vörunúmer til viðbótar við íslensk tollskrárnúmer. Það geti kallað á handvirka endurflokkun þúsunda vara, umfangsmiklar kerfisbreytingar og aukna hættu á mistökum og töfum við tollafgreiðslu. Félagið telur nauðsynlegt að Skatturinn birti opinbera, rafræna og staðfesta samsvörunartöflu milli íslenskra og evrópskra tollnúmera.
Þá bendir FA á að stjórnsýslan sé ekki tilbúin til að taka við verkefninu. Rafræn gátt fyrir leyfisumsóknir hafi ekki verið opnuð, skýrar leiðbeiningar skorti og takmarkaður fjöldi sérfræðinga sé tiltækur til að aðstoða fyrirtæki.
FA mótmælir einnig fyrirhuguðu afgreiðslugjaldi fyrir leyfi til að uppfylla lögboðnar skyldur samkvæmt kerfinu.
Hætta á minni samkeppni og verðhækkunum
FA varar sérstaklega við áhrifum CBAM á samkeppni á íslenskum markaði. Innflytjendur leiti gjarnan til framleiðenda utan EES til að tryggja fjölbreytt vöruframboð og hagstæðara verð. Íþyngjandi kröfur geti gert slík viðskipti óhagkvæm eða jafnvel ómöguleg.
„Ef CBAM-kerfinu er beitt með óraunhæfum kröfum verður nánast ómögulegt fyrir íslensk fyrirtæki að eiga í viðskiptum við birgja utan EES,“ segir í umsögninni.
FA bendir á að afleiðingin geti orðið minni samkeppni, færri valkostir fyrir innflytjendur og hærra verð á málmum, lögnum, festingum og byggingarvörum, sem muni meðal annars hafa áhrif á kostnað við mannvirkjagerð hér á landi.
FA leggur til fimm breytingar
Í umsögn sinni fer FA fram á að Alþingi breyti frumvarpinu á eftirfarandi hátt:
- Lögfestur verði að lágmarki 24 mánaða aðlögunarfrestur.
- Beitingu stjórnvaldssekta og leyfissviptinga verði frestað.
- Skatturinn verði skyldaður til að birta opinbera samsvörunartöflu íslenskra og evrópskra tollnúmera.
- Fyrirhugað afgreiðslugjald verði fellt niður.
- Ákvæði um hlutverk tollmiðlara verði gerð raunhæf.
FA leggur áherslu á að innleiðing loftslagsreglna verði að taka mið af raunverulegum aðstæðum íslenskra fyrirtækja og að stjórnvöld tryggi nauðsynlega innviði og raunhæfan aðlögunartíma áður en íþyngjandi skyldur og viðurlög taki gildi.