Félagsfundur 5. september: Aðstoðarseðlabankastjóri fjallar um efnahagshorfur

25.08.2023

Vaxtastig, verðbólga, launakostnaður og komandi kjarasamningar eru mál málanna í atvinnulífinu þessa dagana. Þessi mál og fleiri til verða til umræðu á fyrsta félagsfundi haustsins þriðjudaginn 5. september. Þá kemur Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri peningastefnu til okkar á morgunverðarfund kl. 8.30 og ræðir um efnahagshorfur framundan.

Fundurinn verður haldinn í nýjum fundarsal Félags atvinnurekenda í Skeifunni 11. Við hvetjum félagsmenn til að mæta og fá sér léttan morgunverð, skoða nýju húsakynnin okkar, hlusta á áhugavert erindi og spyrja aðstoðarseðlabankastjórann út í peningastefnuna og efnahagshorfur. Skráning á fundinn er á hlekknum hér að neðan.

Rannveig Sigurðardóttir hefur starfað í Seðlabanka Íslands frá árinu 2002, sem varaseðlabankastjóri peningastefnu og aðstoðarseðlabankastjóri síðastliðin fimm ár. Áður var hún staðgengill aðalhagfræðings og aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs bankans. Rannveig hefur jafnframt verið ritari peningastefnunefndar og sinnt verkefnum er lúta að samstarfi Seðlabankans og OECD. Áður starfaði Rannveig sem hagfræðingur BSRB og Alþýðusambands Íslands. Rannveig er hagfræðingur að mennt og lauk fil. kand. prófi og meistaraprófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla og stundaði þar doktorsnám.

Skráning á félagsfund um efnahagshorfur 5. sept.

Nýjar fréttir

8. júlí 2024

Innskráning