Félagsfundur til kynningar á nýjum kjarasamningi

13.12.2022

Nýr kjarasamningur FA við VR og LÍV verður kynntur á rafrænum félagsfundi fimmtudaginn 15. desember. Fundurinn verður haldinn á Zoom kl. 10-10.30. Skráning á fundinn er hér að neðan.

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA mun fara yfir efni samningsins og áætlun varðandi framhald viðræðna við samtök verslunarmanna.

Samningurinn var undirritaður í dag, þriðjudag. Samkvæmt lögum FA skulu allir kjarasamningar við samtök launþega undirritaðir með fyrirvara um samþykki stjórnar félagsins. Samþykktan samning skal kynna á almennum félagsfundi eins fljótt og unnt er. Samningsaðilar þurfa að tilkynna um afgreiðslu samningsins 21. desember.

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning