Fjölsótt indversk-íslenskt viðskiptaþing

11.09.2019
Forsetar Indlands og Íslands ávörpuðu þingið.

Indversk-íslenskt viðskiptaþing, sem haldið var í tilefni af opinberri heimsókn Ram Nath Kovind forseta Indlands hingað til lands, tókst einstaklega vel og var fjölsótt. Samtals sátu þingið nokkuð á annað hundrað manns, en 35 indversk fyrirtæki og samtök og 60 íslensk skráðu sig. Íslensk-indverska viðskiptaráðið, sem Félag atvinnurekenda hýsir og rekur, skipulagði þingið í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Íslandsstofu, auk ASSOCHAM, Associated Chambers of Commerce and Industry of India, og CII, Confederation of Indian Industry.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og ÍIV, stýrði þinginu. Forsetar Indlands og Íslands, þeir Ram Nath Kovind og Guðni Th. Jóhannesson, ávörpuðu báðir þingið. Auk þeirra voru ræðumenn þau Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, Balkrishan Goenka, forseti ASSOCHAM, Bala Kamallakharan, formaður ÍIV, Arnar Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, Alban Lucian Rodricks, framkvæmdastjóri CIS Bureaus Facility Services, Prasoon Dewan, formaður Indo-Icelandic Business Association, og Gireendra Kasmalkar, stofnandi og forstjóri Ideas to Impacts Innovations.

Glærur Arnars Guðmundssonar
Glærur Alban Lucian Rodricks
Glærur Gireendra Kasmalkar

Þrenn íslensk samtök undirrituðu samstarfssamninga og -yfirlýsingar við indversk samtök. Samningarnir eru á milli ASSOCHAM og Félags atvinnurekenda, ASSOCHAM og Samtaka iðnaðarins og Íslensk-indverska viðskiptaráðsins og IIBA.

Hér að neðan má sjá myndir, sem Gunnar Jónatansson ljósmyndari tók á þinginu.

Frétt Stöðvar 2 af viðskiptaþinginu

Umfjöllun RÚV um þingið

 

Nýjar fréttir

Innskráning