FA gerir nýjan kjarasamning við VR/LÍV

22.01.2016
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, undirrituðu kjarasamninginn í dag.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, undirrituðu kjarasamninginn í dag.

Félag atvinnurekenda undirritaði í dag nýjan kjarasamning við VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna. Samningurinn er í öllum aðalatriðum samhljóða þeim samningi sem Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið undirrituðu í gær á grundvelli SALEK-samkomulagsins svokallaða.

Samkvæmt samningnum hækka laun meira en áður hafði verið samið um til að tryggja sambærilega launaþróun á öllum vinnumarkaðnum. Launaþróunartrygging fyrir árið 2016 fellur brott. Í stað hennar kemur 6,2% almenn launahækkun þann 1. janúar 2016, að lágmarki kr. 15.000 á mánaðarlaun fyrir dagvinnu.

Ákvæði um launaþróunartryggingu eða „baksýnisspegil“ eins og samið hafði verið um í maí síðastliðnum falla því út, þó með þeirri undantekningu að launagreiðanda er heimilt að draga frá umsaminni launahækkun á árinu 2016 ótilkynnta almenna hækkun launa starfsmanna sem framkvæmd hefur verið eftir gildistöku kjarasamninga viðkomandi aðildarsamtaka á árinu 2015 og fram að undirskrift nýja samningsins, hafi hún náð til þorra starfsmanna í fyrirtækinu. Þó skal enginn starfsmaður fá minna en 6,2% launahækkun, að lágmarki kr. 15.000 á mánaðarlaun fyrir dagvinnu, á tímabilinu 2. maí til 31. desember 2015.

Hinn 1. maí á næsta ári verður almenn launahækkun 4,5% í stað 3% og í maí 2018 verður almenn launahækkun 3% í stað 2%.

Þá hækkar framlag vinnuveitenda í lífeyrissjóð samkvæmt samningnum, um 0,5% frá 1. júlí næstkomandi, um 1,5% til viðbótar frá 1. júlí 2017 og enn um 1,5% frá 1. júlí 2018, eða samtals um 3,5 prósentustig. Framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð verður þá orðið 11,5%.

Stefnt er að því að gera sambærilega samninga á næstu dögum við aðra viðsemjendur FA innan ASÍ, Rafiðnaðarsambandið og Grafíu. Samningarnir verða bornir undir stjórn FA eins og lög félagsins gera ráð fyrir og kynntir á félagsfundi.

Kjarasamningur FA og VR/LÍV 22. janúar 2016

Nýjar fréttir

Innskráning