Kærunefnd leggur fyrir ríkið að bjóða út flugmiðakaup

29.04.2015

WowKærunefnd útboðsmála hefur í framhaldi af kæru Wow air ehf. lagt fyrir fjármálaráðuneytið að bjóða út innkaup á flugfarmiðum til og frá Íslandi.

Í úrskurði nefndarinnar er fallist á þau sjónarmið sem Wow og Félag atvinnurekenda hafa haldið fram, að skylda ríkisins til að bjóða út flugmiðakaupin sé fortakslaus þar sem farmiðaviðskipti ríkisins séu yfir þeim viðmiðunarfjárhæðum sem lög um opinber útboð tilgreina. Kærunefnd „þykir þó mega slá því föstu að heildarkaup íslenska ríkisins á því tímabili sem miða ber við séu langt umfram þær viðmiðunarfjárhæðir sem að framan greinir.“

Kærunefndin kemst sömuleiðis að þeirri niðurstöðu að fjármálaráðuneytið og aðrar ríkisstofnanir hafi ekki keypt flugfarmiða í samræmi við þau innkaupaferli sem eru tilgreind í lögum um opinber innkaup. Ríkið hefur reynt að halda því fram að innkaup einstakra stofnana séu undir viðmiðunarfjárhæðum. Kærunefndin telur hins vegar að líta verði á farmiðakaup ríkisins sem eina heild og að þau séu á ábyrgð fjármálaráðuneytisins. „Samkvæmt þessu er það niðurstaða nefndarinnar að varnaraðili [fjármálaráðuneytið] hafi gerst brotlegur við áðurlýstar reglur um opinber innkaup með því að koma á fót og viðhalda ástandi þar sem umrædd þjónusta var ekki keypt inn í samræmi við lögákveðna innkaupaferla,“ segir kærunefnd. Er þar átt við viðskipti ríkisins við Icelandair samkvæmt samningi við fyrirtækið.

Nefndin taldi sig ekki hafa heimildir til að banna að veita vildarpunkta eða aðra fjárhagslega umbun til ríkisstarfsmanna í skiptum fyrir kaup hins opinbera á þjónustu. „Nefndin minnir þó á að við opinber innkaup ber að gæta jafnræðis og gagnsæis, bæði við framsetningu útboðsskilmála og mat á tilboðum,“ segir í úrskurðinum.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að félagið fagni úrskurðinum, enda sé niðurstaðan mjög í samræmi við málflutning FA. „Fjármálaráðuneytið hefur lýst því yfir að farmiðakaupin verði boðin út. Við fögnum því engu að síður að kærunefndin staðfesti fortakslausa skyldu ríkisins til að bjóða út þessi viðskipti og fallist jafnframt á það sjónarmið að fjármálaráðuneytið hafi brotið lögin um opinber innkaup. Ef einhver ætti að ganga á undan með góðu fordæmi í umgengni við þá löggjöf er það fjármálaráðuneytið,“ segir Ólafur.

Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, segist fagna úrskurðinum. „Félagið mun nú vonandi fá tækifæri til að bjóða í innkaup ríkisins. Afleiðing þess mun án efa verða mikill fjárhagslegur ábati fyrir ríkissjóð og þar með fyrir okkur öll, enda er WOW Air hagkvæmasta og stundvísasta flugfélag á Íslandi,“ segir Skúli.

Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður á Málflutningsstofu Reykjavíkur, sem fór með málið fyrir hönd WOW Air, segir að úrskurðurinn sé í samræmi við væntingar. „Þetta var það sem lagt var upp með. Það er ljóst að hið opinbera hefur um langa hríð sniðgengið skyldur sínar sem er miður fyrir umbjóðanda minn sem og skattgreiðendur almennt. Fram á við hefur þetta þá þýðingu að umbjóðandi minn fær vonandi að taka þátt í lögmætu og réttlátu útboði þar sem að aðilar keppa á verðleikum sínum í því að bjóða sem besta þjónustu fyrir sem minnst fé. Þegar horft er aftur er hins vegar ljóst að þetta hefur valdið umbjóðanda mínum miklu tjóni enda hefur hann orðið af miklum viðskiptum en hið ólögmæta ástand hefur leitt til þess að viðskipti ríkisins hafa nær eingöngu verið við Icelandair. Hvort að það tjón verður sótt þarf einfaldlega að skoða nánar.“

Úrskurður kærunefndar útboðsmála

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning