Nýr samningur um eflingu Kínaviðskipta

11.05.2016
IMG_0096
Frá vinstri: Zhao Ye, viðskiptafulltrúi í kínverska sendiráðinu, Ársæll Harðarson formaður ÍKV, Ning Lin, framkvæmdastjóri skrifstofu CCPIT í London, Shao Danni aðstoðarframkvæmdastjóri og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri ÍKV og FA.

Íslensk- kínverska viðskiptaráðið, sem Félag atvinnurekenda hýsir, fékk í morgun heimsókn frá fulltrúum Alþjóðaviðskiptaráðs Kína (China Council for the Promotion of International Trade, CCPIT). Tilgangur fundarins er að undirbúa undirritun nýs samstarfssamnings ÍKV og CCPIT um eflingu gagnkvæmra viðskipta milli Íslands og Kína.

Fulltrúar CCPIT á fundinum voru starfsmenn ráðsins í London, en skrifstofa CCPIT þar sinnir einnig samskiptum við Írland og Ísland. Af hálfu ÍKV sátu fundinn Ársæll Harðarson formaður og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri.

Nýjar fréttir

Innskráning