Í gær var haldin málstofa sem Íslensk – kínverska viðskiptaráðið – FKA og Félag atvinnurekenda stóð að. Fullt var út úr dyrum og sýnir þátttakan,að áhugi okkar Íslendinga er mikill á fríverslunarsamningnum.
Framsögumenn voru: Ragnar G. Kristjánsson, deildarstjóri í Utanríkisráðuneytinu, sem fjallaði um „Tollar og fríðindameðferð“ .
Svanhvít Reith, fagstjóri hjá Tollstjóra, sem fjallaði um „Upprunareglur og tækifæri á öðrum mörkuðum“.
Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, sem fjallaði um „Vöruflutningar frá Kína“.
Örn Svavarsson, eigandi Minja gjafavöruverslun, sem fjallaði um „Vörurnar heim“.
Bergdís Ellertsdóttir, skrifstofustj. viðskiptasamninga í Utanríkisráðuneytinu fjallaði um „Vaxandi mikilvægi þjónustu í heimsviðskiptum“
Hans Bragi Bernharðsson, sem fjallaði um „Stofnun fyrirtækis í Kína“.