Gerðu ekki eins og mamma þín segir þér, Jens – Bókun 35 og þver­sögn minni­hlutans

25.11.2026

Grein Páls Rúnars M. Kristjánssonar, formanns Íslensk-evrópska verslunarráðsins, á Vísi 25. nóvember 2026. FA hýsir og rekur ÍEV.

Af nýlegum fréttum má ráða að minnihluti utanríkismálanefndar leggist gegn því að frumvarp um bætta innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn verði samþykkt. Rökin eru sum hver ný af nálinni. Má þar nefna að í fjölmiðlum hafa þingmenn í minnihluta haldið því fram að þar sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafi höfðað mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum, gæti samþykkt frumvarpsins veikt málsvörn Íslands, því hún yrði túlkuð sem viðurkenning á að Ísland hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum.

Þetta eru einhver undarlegustu rök sem heyrst hafa í langri og oft skrautlegri umræðu um bókun 35.

Að neita að borga af því að maður var rukkaður
Í röksemdum minnihlutans felst að það megi alls ekki gera það sem er rétt ef það skaðar röksemdirnar fyrir því að gera það sem er rangt. Þannig eigi maður ekki að borga réttmætar skuldir sínar ef einhver vogar sér að innheimta þær, ekki keyra yfir á grænu ljósi því að slíkt væri viðurkenning á því að bannað væri að fara yfir á rauðu, alls ekki hægja á sér þegar maður er stöðvaður fyrir hraðakstur og ekki taka til í herberginu sínu ef mamma segir manni að gera það. Fylgismenn þessarar kenningar myndu svo augljóslega ekki fara á slysó eftir slæma byltu, því þá væru þau að viðurkenna að vera fótbrotin.

Rökleysið er augljóst.

Sama skylda, nýtt hlutverk
Kaldhæðnin verður enn meiri þegar litið er til þess hverjir halda rökunum á lofti. Frumvarpið var fyrst lagt fram árið 2023 af þáverandi utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, og samþykkt af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG. Þá var samþykkt þess talin forsenda þess að Ísland stæði við EES-samninginn. Sumir þeirra, sem nú treysta sér ekki til að mæla með málinu, töluðu sjálfir fyrir því á sínum tíma að innleiðing bókunarinnar væri lagfærð, þannig að ekki færi á milli mála að Ísland stæði við EES-samninginn og fólk og fyrirtæki gæti treyst því að geta byggt rétt sinn á honum fyrir dómstólum.

Skuldbindingin hefur ekki breyst. Texti bókunar 35 hefur ekki breyst. Niðurstaða Hæstaréttar um þörfina á bættri innleiðingu hefur ekki breyst. Það eina sem hefur breyst er hver situr í ríkisstjórn. Þetta er ekki lögfræðileg afstaða heldur klassískur pólitískur leikþáttur, þar sem sama skylda fær nýtt hlutverk eftir því hvorum megin borðs menn sitja. En á hollusta stjórnmálamanna við hagsmuni borgara og fyrirtækja að fara eftir því hvort þeir eru í stjórnarmeirihluta eða ekki?

Þetta glóruleysi rökþrota stjórnmálamanna væri auðvitað bara eins og hvert annað grín, ef það væri ekki að valda orðspori og hagsmunum Íslands miklum skaða.

Í lögeiði Úlfljótslaga hétu menn því að sækja mál eða verja „sem ek veit réttast ok sannast ok helzt at lögum“ og leysa „öll lögmæt skil af hendi“. Sá eiður hefur að minnsta kosti skolast hressilega til þegar Íslendingar sækja dómþing í erlendu ríki og halda þar ekki fram því sem er réttast, sannast og helst að lögum, né viljum við leysa lögmæt skil af hendi. Þvert á móti veltum við okkur upp úr ólögmæti og slæmri trú í örvæntingarfullri tilraun til að komast undan skuldbindingu okkar eigin orða.

Mun þetta sannfæra EFTA-dómstólinn?
Það sem mestu skiptir er þó að hin órökrétta röksemd stenst heldur ekki lögfræðilega. Samþykkt frumvarpsins getur því ekki veikt málsvörn Íslands en mun þó leiða til þess að enginn efnislegur ágreiningur teldist vera fyrir hendi á milli aðila. Samþykkt frumvarpsins um bókun 35 myndi þannig leysa deiluna og leiða til þess að almenningi og fyrirtækjum væri tryggður sá réttur sem EES samningurinn á að veita þeim.

Telji minnihluti utanríkismálanefndar að Íslandi beri ekki að innleiða bókun 35 með réttum hætti á hann að segja það hreint út og færa rök fyrir því. Fyrir þeirri afstöðu má bera virðingu. En að viðurkenna réttmæta skyldu en neita að efna hana, vegna þess að einhver er farinn að krefjast efnda, er ekki virðingarvert.

Nýjar fréttir

Innskráning