Félag atvinnurekenda leggur til við Alþingi að tekjuöflunarbandorminum, sem fylgir fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár, verði breytt þannig að hækkanir krónutöluskatta og -gjalda miðist við verðbólgumarkmið Seðlabankans, í stað þess að taka mið af 5,2% verðbólgu ársins. Þá ítrekar félagið tillögu sína um að krónutala áfengisskatta, sem eru þeir hæstu á Vesturlöndum, verði fryst þannig að þeir lækki hlutfallslega.
Í umsögn sinni um fjárlagabandorminn ítrekar FA gagnrýni sína á þá leið sem farin hefur verið í fjárlagafrumvarpi og tengdum frumvörpum, að vísitölutengja hækkanir krónutölugjalda og -skatta ríkisins. „Sú aðferð gengur beint gegn markmiðum fjárlagafrumvarpsins um lækkun verðbólgu og torveldar það verkefni Seðlabankans að halda verðbólgunni í skefjum. Það að hækka skatta og gjöld um 5,2% í stað þess að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans ýtir beinlínis undir verðhækkanir og verðbólguvæntingar“ skrifar FA.
Ríkisvaldið verður að leggja sitt af mörkum
Rifjuð er upp gagnrýni Seðlabankans á þennan „ósið“ eins og varaseðlabankastjóri kallaði það á félagsfundi FA í síðasta mánuði. „Við þær aðstæður sem nú eru uppi, þar sem verðbólga er langt umfram markmið Seðlabankans og forsendur kjarasamninganna sem gerðir voru 2024 eru í uppnámi, er enn brýnna en áður að ríkið láti af þessum ósið,“ segir í umsögn FA. „Raunveruleg hætta er á að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verði sagt upp síðar í mánuðinum. Ýmis fyrirtæki, þar með taldir félagsmenn í FA, hafa skuldbundið sig til að halda verðhækkunum í skefjum. Samband íslenzkra sveitarfélaga hefur lýst yfir vilja sínum til að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa undir 2,5% á árinu 2027. Ríkisvaldið verður að leggja sitt af mörkum í þessu efni og takmarka hækkanir við verðbólgumarkmiðið.“
Kílómetragjald og bankaskattur hækka kostnað fyrirtækja
FA átelur einnig tæplega 16% hækkun kílómetragjalds og bendir á að hún muni valda hækkun flutningskostnaðar og þar með almenns verðlags. Þá er bent á að hækkun bankaskatts sé skattahækkun á atvinnulífið allt, þar sem verið sé að hækka fjármagn, sem sé á meðal aðfanga fyrirtækja, í verði. „Hækkun fjármagnskostnaðar kemur sérstaklega illa við lítil og meðalstór fyrirtæki, sem eiga almennt færri kosti en stærri fyrirtæki á að afla sér fjármögnunar utan bankakerfisins,“ segir í umsögn FA.
Krónutala áfengisskatta verði fryst
FA gerir áformaða 5,2% hækkun áfengisskatta að umtalsefni, en áfengisskattar á Íslandi eru þeir hæstu á Vesturlöndum. FA birtir í umsögn sinni tölur um álagningu áfengisskatts og virðisaukaskatts á eina vodkaflösku, sem kostar 10 evrur fyrir skatta. Skattlagning á flöskuna er á Íslandi 4,5-falt innkaupsverð hennar. Skattarnir eru um 40% hærri en í Noregi, tvöfalt hærri en í Finnlandi og hátt í fimmfalt hærri en í Danmörku, svo dæmi séu tekin. FA ítrekar fyrri tillögur sínar um að krónutala áfengisskatta verði fryst til að minnka þann mun sem er á skattlagningunni á Íslandi og í nágrannalöndunum.
Hallaleysi verði náð með hagræðingu á gjaldahliðinni
FA telur markmiðið um hallalaus fjárlög mikilvægt, en telur að því eigi fremur að ná með aukinni hagræðingu á gjaldahlið ríkissjóðs. Líkt og fram kemur í umsögn félagsins um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 telur það markmiðið um 1% fækkun ríkisstarfsmanna metnaðarlaust og að þar megi ganga mun lengra, án þess að til umfangsmikilla uppsagna komi hjá ríkinu. Að öðru leyti vísar FA til tillagna sinna, sem lagðar voru inn til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar á síðasta ári.
Umsögn FA um fjárlagabandorminn
Umsögn FA um fjárlagafrumvarp fyrir 2027
Hagræðingartillögur FA
