Góð vika fyrir hagsmunabaráttu FA

02.06.2026

Tvenn ánægjuleg tíðindi hafa borist í vikunni af árangri í hagsmunabaráttu FA fyrir hönd félagsmanna sinna.

Annars vegar samþykkti Alþingi frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um afnám jafnlaunavottunar, en FA hefur frá upphafi lagst gegn því að vottun samkvæmt jafnlaunastaðli yrði lagaskylda. Félagið gagnrýnir reyndar að sú skylda, sem eftir stendur til að skila jafnlaunaskýrslum til Jafnréttisstofu, miðist við fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn, í stað þess að miða við 100 starfsmenn eins og gert er í launagegnsæistilskipun Evrópusambandsins. Þessi áfangi er engu að síður mikið fagnaðarefni og sparar mörgum fyrirtækjum, sérstaklega þeim smærri, mikla vinnu og kostnað vegna jafnlaunavottunar.

Hins vegar var frá því greint í Morgunblaðinu í dag að á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar yrði lögð fram tillaga nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, um að endurskoða deiliskipulag Suðurlandsbrautar, sem FA hefur gagnrýnt harðlega fyrir hönd félagsmanna sinna, sem starfa við Suðurlandsbraut og í nærliggjandi götum.

Þarf að gera betur í einföldun regluverks
„Það er alltaf ástæða til að fagna þegar við náum slíkum árangri í þágu félagsmanna, þótt við eigum hann alls ekki ein,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA. „Baráttan gegn jafnlaunavottuninni er liður í baráttu FA fyrir einföldun regluverks atvinnulífsins og þessi áfangi mun létta mikilli vinnu og kostnaði af atvinnurekendum. Á þessum vígstöðvum þarf hins vegar að gera miklu betur.“

Ólafur segir að barátta FA hafi klárlega skipt máli í Suðurlandsbrautarmálinu. „Við fengum mjög takmarkaða hlustun hjá fyrrverandi borgarstjórnarmeirihluta í þessu máli, en ásamt fleiri samtökum í atvinnulífinu settum við málið á dagskrá og áttum okkar þátt í að gera það að kosningamáli í borgarstjórnarkosningunum. Samstarfssáttmáli nýs meirihluta gefur fyrirheit um fleiri jákvæð skref fyrir atvinnulífið, líkt og lækkun fasteignaskatta og einföldun eftirlits- og leyfisveitingakerfis borgarinnar. Það verður verkefni nýhafins kjörtímabils að fylgja þeim eftir.“

Nýjar fréttir

Innskráning