„Endahnútur“ Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Viðskiptablaðinu 27. október 2027
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um svokallaða leigubremsu hlaut fremur óblíðar móttökur í umsagnagátt Alþingis. Margir umsagnaraðilar benda á að frumvarpið sé líklegt til að vinna gegn eigin markmiðum og muni stuðla að minna framboði leiguhúsnæðis, lakara viðhaldi, styttri samningum og hærri upphafsleigu.
Samtök fyrirtækja, þ.e. Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda, sameinast í gagnrýni sinni á að frumvarpið sé látið ná til atvinnuhúsnæðis. FA bendir þannig á að markmið frumvarpsins lúti fyrst og fremst að húsnæðisöryggi einstaklinga og fjölskyldna, fyrirsjáanleika í húsnæðiskostnaði heimila og forsendum kjarasamninga. Þessi sjónarmið skýri hins vegar ekki hvers vegna nauðsynlegt sé að takmarka samningsfrelsi fyrirtækja á atvinnuhúsnæðismarkaði.
Athygli vekur að Seðlabanki Íslands tekur mjög eindregið undir þessi sjónarmið. Bankinn segir í umsögn sinni að ekki sé að finna neinar skýringar í greinargerð frumvarpsins á því hvers vegna takmarkanirnar eigi einnig að ná til atvinnuhúsnæðis. Bankinn bendir á að leiga atvinnuhúsnæðis hafi ekki bein áhrif á mælingu verðbólgu, að sjónarmið um húsnæðisöryggi eigi þar ekki við og að fjármögnun stærri fasteignafélaga sé að verulegu leyti verðtryggð. Hann telur því nauðsynlegt að greina sérstaklega tilefni og nauðsyn breytinganna áður en samningsfrelsi á atvinnuhúsnæðismarkaði er takmarkað.
Ef leigubremsufrumvarpið verður samþykkt óbreytt gefur það afar vafasamt fordæmi. Það felur í sér inngrip stjórnvalda í verðmyndun á markaði og víðtækar skerðingar á samningsfrelsi, án þess að þörfin fyrir slík inngrip blasi við. Ráðherrann gerir ekki einu sinni tilraun til að rökstyðja þörfina eða greina áhrif inngripsins á markaðinn.
Frumvarpið vekur þannig upp grundvallarspurningar um mörk afskipta hins opinbera af samningsfrelsi fyrirtækja og verðmyndun á markaði. Ef það fær að viðgangast að setja bremsu á verðmyndun á húsnæðismarkaðnum, hvar stígur ríkið þá næst á bremsuna?