Ósanngirni er ósýnilegur kostnaðarliður í fyrirtækjum. Upplifun starfsfólks af ósanngirni getur magnast upp ef leikreglurnar, sem gilda um störfin, eru ekki uppfærðar til að taka mið af ólíkum væntingum ólíkra kynslóða og það er hlutverk stjórnenda að uppfæra reglurnar og sýna forystu. Þetta segir Kjartan Örn Sigurðsson, eigandi Ormsson, í viðtali við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda í hlaðvarpsþættinum Kaffikróknum. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Kjartan skrifaði á dögunum grein í Morgunblaðið sem vakti mikla athygli undir fyrirsögninni „Kynslóðastríð á vinnustöðum“, en þar fjallaði hann um núning og óánægju sem getur komið fram vegna ólíkrar vinnumenningar og væntinga eldri og yngri kynslóða á vinnustöðum. Eldri starfsmenn hafi tileinkað sér vinnumenningu þar sem skyldur séu skýrar og réttindi áunnin yfir tíma með framlagi. Yngra fólkið komi inn með skýrari réttindahugsun, kröfu um skýrari mörk vinnu og einkalífs og þá nálgun að réttindin gildi frá fyrsta degi.
Ábyrgðin er stjórnenda
Kjartan segir að það sé á ábyrgð stjórnenda að skýra hvað felist í starfinu, hvað sé sjálfsagt og hvað þurfi að semja um, hvar sveigjanleiki eigi við og hvar hann eigi sín takmörk. Ef þennan skýrleika skorti, upplifi starfsfólk ósanngirni.
„Ósanngirni sérðu ekki í ársreikningum fyrirtækja. Það merkilega er samt að ósanngirni hagar sér eiginlega eins og vextir. Hún hleðst upp og það koma svo ósanngirnisvextir ofan á, sem á endanum springur. Ef við stjórnendur leiðréttum ekki aðeins vegferðina sem við erum á, erum ekki skýrari gagnvart vinnureglunum, þá eigum við á hættu að safna upp mikilli ósanngirni, sem mun kosta okkur mjög mikið á endanum,“ segir Kjartan og segir að afleiðingarnar geti til dæmis verið að fyrirtækjum haldist ekki vel á starfsfólki.
Kjartan talar um starfsánægjumælingar í fyrirtækjum. „Okkur hættir til að horfa á niðurstöðurnar frekar sem stakar tölur – vorum við upp eða niður? – frekar en vísbendingar um dýpri undirliggjandi þætti eins og skýrleika, sanngirni og sameiginlegar væntingar. Ég held að þetta þrennt skipti miklu, miklu meira máli en stjórnendur átta sig á í dag.“
Kjartan og Ólafur ræða meðal annars um tengsl ólíkrar upplifunar kynslóða við aukningu veikindafjarvista í fyrirtækjum, mörk sveigjanleikans þegar kemur að fjar- og heimavinnu og ýmis fleiri atriði tengd starfsmannastjórnun í Kaffikróknum, sem má horfa á á Youtube og hlusta á Spotify.