Félag atvinnurekenda og GS1 Ísland efna til kynningar á nýrri tæknilausn til skráningar vöruupplýsinga þriðjudaginn 3. nóvember kl. 8.30 í fundarsal FA í Skeifunni 11b. Fyrirlesari er Andri Sigurðsson, vörustjóri GS1 Gagnalaugar hjá GS1 Ísland.

Verslanir þurfa áreiðanlegar vöruupplýsingar og sífellt fleiri neytendur leita að vörum og upplýsingum á netinu og með því að spyrja gervigreind eins og ChatGPT, Gemini eða Claude. En hvaðan fær gervigreindin svörin sín? Ef upplýsingarnar um vörur innflytjenda og framleiðenda eru ekki aðgengilegar á þann hátt að gervigreindin skilji þær, þá giskar hún, eða mælir einfaldlega með vöru frá einhverjum öðrum.
Í erindinu kynnir GS1 Ísland nýja leið til að halda utan um vöruupplýsingar. Framleiðandi eða innflytjandi skráir vöruna á einum stað, til dæmis með því að taka mynd af umbúðunum, og þaðan skila upplýsingarnar sér:
- til verslana
- á vörusíðu sem leitarvélar og gervigreind finna og skilja
- í gagnagrunn rekinn af GS1 Ísland þar sem fyrirtæki geta haldið utan um vörurnar sínar og uppfært vöruupplýsingar á einum stað
Hér neðst á síðunni er dæmi um hvernig mynd af umbúðum vöru skilar sér í nákvæmum vöruupplýsingum.
Hvorki þarf að ráða forritara né ráðast í stórt verkefni til að taka þátt. Ávinningurinn er að réttar upplýsingar um vöruna koma frá fyrirtækinu sjálfu, en eru ekki sóttar hingað og þangað á netinu.
Erindið hentar öllum sem framleiða eða flytja inn vörur, og ekki þarf að búa yfir tækniþekkingu til að hafa gagn af. Við lofum mannamáli á fundinum.
Skráning á fundinn er hér að neðan. Léttur morgunverður er í boði. Inngangur í Skeifuna 11b er á jarðhæð, á milli Lyfju og Zo-on.
Um GS1 Ísland
GS1 Ísland er hluti af alþjóðlegu GS1 samtökunum, sem eru á bak við strikamerkin sem skönnuð eru á kassanum um allan heim. GS1 Ísland er í eigu Félags atvinnurekenda, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Viðskiptaráðs Íslands og Sambands íslenskra samvinnufélaga. Félagið er hlutlaust og ekki rekið í hagnaðarskyni. Hlutverk þess er að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að nota sameiginlega staðla, svo að upplýsingar um vörur komist réttar og hratt á milli framleiðenda, birgja, verslana og nú einnig gervigreindar.

