Félag atvinnurekenda boðar til almenns félagsfundar kl. 14 föstudaginn 29. janúar til að kynna nýundirritaða kjarasamninga við viðsemjendur félagsins innan Alþýðusambandsins. Fundurinn fer fram í húsnæði félagsins í Húsi verslunarinnar, 9. hæð.
FA hefur undanfarna daga skrifað undir samninga við VR/Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsamband Íslands og Grafíu, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum. Samningarnir eru í öllum aðalatriðum samhljóða þeim samningum sem Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið undirrituðu í síðustu viku.
Samkvæmt lögum FA skulu allir kjarasamningar gerðir með fyrirvara um samþykki stjórnar félagsins. Stjórn FA samþykkti samningana á fundi sínum í dag. Lögin kveða jafnframt á um að samþykktan samning skuli „kynna á almennum félagsfundi eins fljótt og unnt er.“
Á fundinum verður farið yfir efnisatriði samningana, þýðingu þeirra og forsögu og praktísk atriði varðandi samþykkt þeirra og útgreiðslu samkvæmt þeim.
Skráning á fundinn – athugið að velja réttan viðburð