Lítil og meðalstór fyrirtæki vænta mikils af nýjum stjórnarsáttmála

28.09.2021

 

Grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, á visir.is 28. september 2021.

Forystumenn stjórnarflokkanna ræddu m.a. málefni minni og meðalstórra fyrirtækja í Kaffikróknum hjá FA.

Flokkarnir þrír sem farið hafa með stjórn landsins undanfarin fjögur ár eru nú í viðræðum um framhald á stjórnarsamstarfi sínu eftir að stjórnin jók meirihluta sinn í þingkosningunum á laugardag. Gera má ráð fyrir að áherzlur í stjórnarsamstarfinu taki einhverjum breytingum; innbyrðis valdahlutföll eru breytt og flokkarnir settu önnur mál á oddinn fyrir þessar kosningar en þær síðustu.

Uppistaðan í Félagi atvinnurekenda eru lítil og meðalstór fyrirtæki. Félagið hefur barizt fyrir hagsmunum þeirra m.a. með áherzlu á lækkun skatta og gjalda á fyrirtækjarekstur, einföldun regluverks og skilvirka samkeppnislöggjöf og -eftirlit. Félagið kynnti fyrir kosningarnar tíu hagsmunamál fyrirtækja, sem ættu heima í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Þeirra á meðal eru lægra tryggingagjald, uppstokkun á fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði, samkeppnismat fyrir alla nýja og gildandi löggjöf og einföldun á eftirlitsgjöldum sem fyrirtæki þurfa að greiða.

Framsókn: Lækka gjöld á minni fyrirtækin
Flokkarnir þrír, sem nú ræða um endurnýjað samstarf, lögðu allir áherzlu á mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja í stefnuskrám sínum fyrir kosningarnar. Framsóknarflokkurinn, sem stjórnin getur þakkað fjölgun í þingliði sínu, kynnti sig sem „málsvara lítilla og meðalstórra fyrirtækja“ og vill taka upp þrepaskipt tryggingagjald og lækka það á minni fyrirtækin. Flokkurinn vill láta taka tillit til stærðar fyrirtækja við álagningu ýmissa opinberra gjalda, sem í dag eru í formi flatra gjalda eða skatta, t.d. gjöld vegna starfsleyfa og úttekta.

Sjálfstæðismenn: Einfalda regluverk, létta skatta
Sjálfstæðisflokkurinn sagði í sínum kosningaáherzlum að lítil og meðalstór fyrirtæki væru „hryggjarstykki íslensks atvinnulífs“. Huga yrði sérstaklega að umhverfi þeirra er varðar skatta, gjöld og regluverk til að styrkja samkeppnisstöðu þeirra. Sjálfstæðismenn vilja halda áfram að einfalda regluverk; segja að það eigi að vera „einfalt að stofna og reka fyrirtæki“ og „einfalt fyrir fyrirtæki að ráða starfsfólk“. Skattaumhverfið verði að sníða þannig að það tryggi alþjóðlega samkeppnishæfni og þannig að „almennt sé ekki þörf fyrir sértækar ívilnanir eða afslátt af opinberum gjöldum“.

Vinstri græn: Hlúa að minni fyrirtækjum, einfalda regluverk
Vinstri græn segja í sinni stefnu að leggja þurfi áherzlu á stuðning við sprotafyrirtæki og umhverfi nýsköpunar og hlúa eigi sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem eru komin af sprotastiginu en ennþá í uppbyggingu. Þá þurfi að auðvelda stofnun og umsýslu lítilla fyrirtækja. Í Kaffikróknum, netþætti FA þar sem rætt var við stjórnmálamenn um stefnu þeirra gagnvart atvinnulífinu, sagðist Katrín Jakobsdóttir formaður VG taka undir hugmyndir um einfaldara regluverk fyrir minni fyrirtækin.

Endurskoðun á fasteignasköttunum
Í Kaffikróknum kom líka fram að formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks voru sammála um að endurskoða verði kerfi álagningar fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði. Vegna hækkunar fasteignamats hefur skattbyrði fyrirtækjanna hækkað um hátt í 70% á sex árum í krónum talið, þrátt fyrir að nokkur sveitarfélög hafi lækkað skattprósentuna. Þessir skattar leggjast oft mjög þungt á minni fyrirtækin.

Handfastar og vel útfærðar aðgerðir
Í ljósi stefnumála stjórnarflokkanna og ummæla forystumanna þeirra fyrir kosningar hljóta atvinnurekendur í minni og meðalstórum fyrirtækjum að vænta mikils af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi. Gera verður ráð fyrir að í nýjum stjórnarsáttmála verði að finna handfastar og vel útfærðar aðgerðir til að auðvelda stofnun og rekstur litlu og meðalstóru fyrirtækjanna, sem eru vissulega hryggjarstykki íslenzks atvinnulífs og grundvöllur undir verðmætasköpun í landinu.

Grein Ólafs á Vísi

Nýjar fréttir

Innskráning