Félag atvinnurekenda og sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi efna til málþings um viðskipti Íslands og Evrópusambandsins miðvikudaginn 16. maí næstkomandi kl. 15. Í lok fundar verður Íslensk-evrópska viðskiptaráðið stofnað. Hér má finna nánari upplýsingar um stofnun viðskiptaráðsins.
Dagskrá
15.00 Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi:
EU and Iceland – Together for the common good
15.15 Magnús Óli Ólafsson, formaður FA og forstjóri Innness:
Er vegið að frjálsum viðskiptum Íslands og ESB?
15.30 Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra:
Inn- og útflutningur landbúnaðarafurða: Tækifæri og áskoranir
15.50 Ólafur Valsson, dýralæknir og sérfræðingur í matvælaeftirliti ESB:
Viðskipti með ferskar matvörur á EES: Áhætta og eftirlit
16.10 Jóhanna Jónsdóttir, ráðgjafi í EES-málum í utanríkisráðuneytinu:
Bætt framkvæmd EES-samningsins
16.30 Stofnfundur Íslensk-evrópska viðskiptaráðsins
17.00 Léttar veitingar
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Málþingið er öllum opið. Það verður haldið í sal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Skráning hér neðar á síðunni.