Málþing um einföldun Evrópuregluverks: Upptaka og myndir

11.02.2026

Félag atvinnurekenda stóð að vel heppnuðu málþingi um einföldun Evrópuregluverks, ásamt Íslensk-evrópska verslunarráðinu, sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og utanríkisráðuneytinu. Málþingið var haldið í HR og jafnframt streymt á netinu og horfðu um 100 manns á það í rauntíma. Horfa má á upptöku af málþinginu í spilaranum hér að neðan.

Fjallað var um fyrirhugaða einföldun á regluverki Evrópusambandsins, sem mun hafa veruleg áhrif á EES-samninginn og væntanlega stuðla að einfaldara regluverki fyrir íslensk fyrirtæki. Einnig var komið inn á ýmsar áskoranir í þessu ferli, eins og þá réttaróvissu sem fylgir því að fyrirtæki undirbúi sig fyrir að uppfylla kröfur regluverks, sem er í breytingafasa og þá áhættu að hér á landi verði tímabundið í gildi strangara regluverk fyrir fyrirtæki en fyrir keppinauta þeirra í ESB-ríkjunum. Framsögumenn voru sammála um að mikilvægt væri hvernig staðið yrði að innleiðingu og framkvæmd breyttra reglna. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra opnaði málþingið, en aðalræðumaður var Michael Wimmer, sem stýrir einföldunarátaki framkvæmdastjórnar ESB. Auk þeirra tóku til máls Árni Páll Árnason, varaforseti ESA, Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor í lögfræði við HR, og Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins. Umræðum stýrði Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og ÍEV.

Nýjar fréttir

Innskráning