Námskeið 4. nóvember: Innkaup og eftirspurn – hvernig tökum við betri ákvarðanir?

23.10.2026

Félag atvinnurekenda og Vörustjórnunarfélag Íslands standa miðvikudaginn 4. nóvember fyrir hagnýtu námskeiði um innkaup og eftirspurn. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig fyrirtæki geta tekið upplýstari ákvarðanir um hvað á að kaupa, hversu mikið og hversu oft, með það að markmiði að tryggja rétta þjónustustigið, bæta birgðastýringu og draga úr bundnu fjármagni. Ýtarlegar upplýsingar um námskeiðið eru hér að neðan.

Meðal þess sem tekið verður fyrir á námskeiðinu eru:

  • Mikilvægi og áhættuflokkun innkaupa, meðal annars með ABC-greiningu og innkaupafylkjum.
  • Eftirspurnarspár og áhrif árstíðasveiflna, nýrra vara og vara á útleið.
  • Innkaupabreytur á borð við afhendingartíma, öryggisbirgðir, pöntunarmagn og birgðaþak.
  • Innkaupamagn og pöntunartaktur með hliðsjón af raunverulegum dæmum.
  • Birgðastaða og stjórnun birgða yfir líftíma vöru.
  • Samspil þjónustustigs, birgða og bundins fjármagns.

Leiðbeinandi er Elva Sif Ingólfsdóttir, MSc í aðfangakeðjustjórnun, sem hefur víðtæka reynslu af innkaupum, birgðastýringu og vörustjórnun, bæði á Íslandi og alþjóðlega. Hún hefur meðal annars unnið að stefnumótun, þróun birgðastýringar og innleiðingu lausna sem styðja betri ákvarðanatöku.

Námskeiðið verður haldið í fundarsal FA, Skeifunni 11, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 8.45–12.00. Kaffi og léttar veitingar verða í boði frá kl. 8.30. Gengið er inn í húsið á suðurhlið, á milli Lyfju og Zo-on.

Þátttökugjald er 28.900 kr. fyrir aðildarfélaga og 34.900 kr. fyrir aðra.

Skráning fer fram með tölvupósti á skraning@logistics.is.

Nýjar fréttir

Innskráning