Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi, hvatningarverðlaun til ferðamannaverslana í Reykjavík, voru afhent í Hörpu í gær. Að viðurkenningunum standa Félag atvinnurekenda, Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, Samtök verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide Ísland.
Njarðarskjöldinn fékk 66°Norður í Bankastræti og Freyjusómann verslunin Upplifun, bækur og blóm í Hörpu. Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi eru viðurkenningar- og hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu.
Njarðarskjöldurinn er nú veittur í nítjánda sinn en markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík. Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.
Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum.
Freyjusómi er viðurkenning sem nú er afhent í fjórða sinn samhliða afhendingu Njarðarskjaldarins. Viðurkenningin er veitt til þeirrar verslunar sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni.
Nafn viðurkenningarinnar er sótt í norræna goðafræði eins og nafn Njarðarskjaldarins en Freyja var gyðja frjósemi og þykir því vel við hæfi að tengja Freyju við viðurkenninguna þar sem frjó hugsun og fersk nálgun er höfð að leiðarljósi í verslunarþjónustu gagnvart erlendum ferðamönnum.