Félag atvinnurekenda og Lyfjafræðingafélag Íslands undirrituðu í dag nýjan kjarasamning. Samningurinn er ótímabundinn og er fyrst og fremst réttindasamningur eins og fyrri samningur félaganna frá 2010, en gengið er út frá því að samið sé um laun á einstaklingsgrundvelli.
Helstu nýmæli í samningnum eru fern. Í fyrsta lagi ákvæði um 25 daga lágmarksorlof í stað 24, sem er í samræmi við almenna þróun á vinnumarkaðnum. Í öðru lagi stofnun starfsmenntasjóðs, sem atvinnurekendur greiða í 0,22% af launum. Í þriðja lagi koma inn í samninginn ákvæði um desember- og orlofsuppbætur, sem gilda um ráðningarsamninga sem gerðir verða eftir komandi áramót, en áfram verður heimild til að fella slíkar greiðslur inn í heildarlaunapakka sem vinnuveitendur og lyfjafræðingar semja um. Loks eru ákvæði í samningnum um að stytta gagnkvæman uppsagnarfrest.
Auk þessa eru gerðar ýmsar tæknilegar uppfærslur á samningnum, sem orðinn var 15 ára gamall, og orðalagsbreytingar til einföldunar og aukins skýrleika.
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum FA, sem hafa lyfjafræðinga í vinnu, á fjarfundi kl. 10.30 hinn 6. janúar næstkomandi. Samkvæmt lögum félagsins ber stjórn að samþykkja samninginn og verður hann tekinn fyrir á stjórnarfundi 15. janúar.
Myndin er frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður LFÍ, samninganefndarmennirnir Katrín Ósk Freysteinsdóttir og Kristófer Hauksson, Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður LFÍ, Birta Sif Arnardóttir lögfræðingur FA, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA og María Bragadóttir, í kjararáði og samninganefnd FA.