Önnur lota örnámskeiða um hagnýta lögfræði í rekstri fyrirtækja hefst 20. september

06.09.2022
Guðný, Arnar, Flóki og Jörgen.

Félag atvinnurekenda efnir í haust til annarrar lotu örnámskeiða fyrir félagsmenn um hagnýta lögfræði í fyrirtækjarekstri. Með þessu er verið að bregðast við fyrirspurnum og ábendingum félagsmanna, sem nefndu m.a. í þjónustukönnuninni okkar fyrr á árinu að þeir vildu fá meiri fræðslu um lögfræðileg mál í rekstrinum. Fyrsta lota námskeiðanna tókst mjög vel og fékk skrifstofa FA þakkir frá mörgum félagsmönnum, sem töldu námskeiðin afar gagnleg.

Námskeiðin eru stutt vefnámskeið, haldin á Zoom með svokölluðu 20+10-fyrirkomulagi; 20 mínútna fyrirlestur og svo tíu mínútur til að svara spurningum og ábendingum. Þannig er markmiðið að stjórnendur þurfi ekki að taka sér meira en hálftíma í hvert námskeið. Hugsanlega verður gerð undantekning frá því í einstaka tilviki ef efnið er mjög viðamikið.

Námskeiðin henta framkvæmdastjórum, mannauðsstjórum, fjármálastjórum og fleiri stjórnendum. Þau eru opin félagsmönnum í FA og haldin kl. 10-10.30.

Um námskeiðin sjá Guðný Hjaltadóttir, lögfræðingur FA, og þrír af lögmönnum MAGNA lögmanna, sem FA á í nánu samstarfi við, þeir Arnar Heimir Lárusson, Flóki Ásgeirsson og Jörgen Már Ágústsson. Á síðasta námskeiðinu fáum við Birki Guðlaugsson, lögfræðing hjá Ríkisskattstjóra, til að fræða félagsmenn.

Tímasetningar
Eftirfarandi örnámskeið verða haldin (með fyrirvara um breyttar dagsetningar):

20. september Uppsagnir og starfslok

4. október Tollflokkun – hvernig verja innflytjendur sig fyrir bakreikningum vegna aðflutningsgjalda?

18. október Stéttarfélög og vinnudeilur – hvaða reglur gilda um kjarasamninga og verkföll?

1. nóvember Samskipti við stjórnvöld         

15. nóvember Útboðsmál

29. nóvember Lög og reglur um áreiðanleikakannanir vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi

Hvert námskeið verður kynnt með góðum fyrirvara þannig að félagsmenn geti skráð sig.

Uppsagnir og starfslok 20. september
Fyrsta námskeiðið fjallar um umsagnir og starfslok. Álitamál vegna þessara atriða eru á meðal algengustu mála sem koma inn á borð lögfræðiþjónustu FA. Hvaða reglur gilda um uppsagnarfrest? Hvaða reglur gilda t.d. ef starfsmaður verður veikur á uppsagnarfresti eða ef hann hverfur frá störfum áður en uppsagnarfresti er lokið?  Þarf að rökstyðja uppsögn starfsmanns? Hvaða reglur gilda um uppgjör launa, orlofs og uppbóta?
Umsjón: Guðný Hjaltadóttir lögfræðingur FA

Skráðu þig á námskeiðið hér að neðan og þú færð sendan hlekk með góðum fyrirvara.

Nýjar fréttir

Innskráning