Næsta örnámskeið FA verður á Teams 31. mars kl. 10 og fjallar um verkfæri til að fást við veikindafjarveru. Skráning er hér neðar á síðunni, en einnig er hægt að skrá sig á vinnustofu í næsta mánuði þar sem farið verður enn dýpra í málin.
Veikindafjarvera er ein stærsta rekstraráskorun vinnustaða í dag. Oft er rætt um misnotkun og dvínandi vinnusiðferði en er vandinn svo einfaldur? Á þessu 20 mínútna rafræna örnámskeiði kafar Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Mental ráðgjöf, ofan í kjarna málsins með hagnýtar lausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Námskeiðið er með sniði sem félagsmenn FA þekkja; 20 mínútna erindi og 10 mínútur í spurningar og svör.
Það sem þú tekur með þér:
- Nýja sýn: Af hverju „svartir sauðir“ eru of einföld skýring á flóknum vanda.
- Raunverulegar orsakir: Hvað segja rannsóknir og reynsla um fjarveru á litlum vinnustöðum?
- 3 verkfæri sem þú getur notað strax:
- Skýrari rammi: skýr samtalsrammi og gagnsæi í væntingum
- Stutt regluleg innlit: helsta forvarnartæki stjórnenda
- Snemmtæk íhlutun: Gríptu inn í áður en fjarvera verður að langvarandi vanda.
Fyrir hverja? Eigendur, framkvæmdastjóra og stjórnendur aðildarfyrirtækja FA.
Fyrirlesari: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hefur þjálfað og handleitt yfir 1.000 stjórnendur í viðverustjórnun og krefjandi samtölum.
Viltu ganga lengra? Í lok erindis verður kynnt hagnýt vinnustofa fyrir þá sem vilja innleiða þessar aðferðir af krafti og er í boði fyrir aðildarfyrirtæki FA, sjá umfjöllun hér að neðan.
Skráðu þig á örnámskeiðið:
Vinnustofa 14. apríl kl. 9-12 í fundarsal FA:
Viðverustjórnun og -samtöl: Frá stefnu til framkvæmdar
Hagnýt vinnustofa fyrir eigendur og stjórnendur aðildarfyrirtækja
Á smærri vinnustöðum vegur hver fjarverudagur þungt. Spurningin er ekki hvort fjarvera komi upp, heldur hvernig þú bregst við henni. Á þessari þriggja klukkustunda vinnustofu fer Hilja Guðmundsdóttir hjá Mental ráðgjöf með þér í saumana á því hvernig á að taka á málum af festu, sanngirni og fagmennsku.
Markmið vinnustofunnar:
- Draga úr óþarfa fjarveru og lágmarka rekstraráhættu.
- Styrkja ábyrgðarmenningu þar sem eftirfylgni er skýr.
- Efla öryggi stjórnenda í erfiðum samtölum og ákvarðanatöku.
Hvað verður unnið með?
Vinnustofan er blanda af markvissri fræðslu, raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi og verklegum æfingum. Unnið verður með:
- Hvenær á að grípa inn í? Greining á mynstrum (misnotkun vs. kerfisbrestur).
- Hvernig andleg líðan hefur bein áhrif á afköst og viðveru.
- Skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni viðverusamtala.
- Sálræna fyrstu hjálp: Beiting verkfæra til að styðja við andlega líðan og afköst.
Áherslan er ekki á „mjúka nálgun“, heldur á ábyrgð, skýrleika og árangur. Þú ferð heim með skýran ramma og verkfæri sem hægt er að innleiða strax í eigin fyrirtæki.
Hagnýtar upplýsingar
- Tími: 3 klukkustundir í húsnæði FA í Skeifunni 11 B
- Leiðbeinandi: Hilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og helsti sérfræðingur Mental í viðverustefnum og stjórnun.
- Þátttökugjald: Félag atvinnurekenda niðurgreiðir námskeiðið fyrir sína félagsmenn:
- 1 þátttakandi – 10.000 kr.
- 2 þátttakendur – 8.500 kr. á mann.
- 3 eða fleiri – 7.000 kr. á mann.
(Gert er ráð fyrir að vinnuveitandi greiði gjaldið. Vsk. ekki innifalinn).
Skráðu þig á vinnustofuna:
Viðbót: Hóphandleiðsla (valkvætt framhald)
Til að styðja við innleiðingu viðverustjórnunar og -samtala býðst þátttakendum að sækja tvær rafrænar hóphandleiðslur á næstu mánuðum eftir vinnustofuna.
Þar gefst færi á að:
- ræða raunveruleg mál og áskoranir
- fá faglega leiðsögn
- nýta reynslu jafningja
- fínstilla innleiðingu
Handleiðslan getur verið valkvæð viðbót eða hluti af heildarpakka.
