Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, segir að aukið aðhald í ríkisfjármálunum sé jákvætt að mati Seðlabankans. Hins vegar sé sjálfvirk verðtrygging eins og notuð er í fjárlagafrumvarpinu varðandi krónutölugjöld og -skatta bins opinbera „langvarandi ósiður“ og mikilvægt verkefni að reyna að leggja slíkt af. Þetta var á meðal þess sem fram kom í erindi Þórarins á félagsfundi Félags atvinnurekenda fyrir helgi. Líflegar umræður voru á fundinum og félagsmenn spurðu margs í framhaldi af erindi Þórarins.
Framkvæmdastjóri FA spurði Þórarin álits á fjárlagafrumvarpinu og hvort hann tæki undir þá gagnrýni sem fram kom í ályktun stjórnar félagsins í síðustu viku. Þar var gagnrýnt að jöfnuði í ríkisfjármálum væri náð með hækkun skatta og gjalda fremur en hagræðingu í ríkisrekstrinum og jafnframt að krónutölugjöld og -skattar ríkisins á næsta ári ættu að hækka um verðbólgu þessa árs, eða 5,2%, i stað þess að miðast við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Stjórnin sagði þessa aðferð senda kolröng skilaboð og viðhalda verðbólgu og háum verðbólguvæntingum.
Jákvætt að aðhaldsstigið sé að aukast
Þórarinn svaraði því til að aðhaldið í ríkisfjármálunum væri að aukast, sem væri jákvætt. Afgangur væri nú á frumjöfnuði ríkissjóðs, þ.e. án vaxtagjalda og -tekna, sem væri einnig jákvætt. Seðlabankinn tæki enga pólitíska afstöðu til þess hvort jöfnuðinum væri náð með minnkun útgjalda eða hækkun tekna. „Við viljum ekki tjá okkur um það. Það sem við viljum horfa á, er hvert aðhaldsstigið er í þessu og þá út frá því hvaða eftirspurnarþrýsting er verið að búa til út frá verðbólgunni. Og þegar kemur að því að horfa á aðhaldsstigið, þá virðist það vera að aukast. Það er jákvætt. Við vildum auðvitað að það væri meira, vegna þess að það hjálpar þá til við að ná tökum á verðbólgunni og gerir það að verkum að við þurfum þá að gera minna og skaðinn af því sem við þurfum að gera verður minni. Það er jákvætt,“ sagði Þórarinn.
Hvað hina sjálfvirku vísitölutengingu gjalda ríkisins sagði Þórarinn hins vegar að um væri að ræða „langvarandi ósið í íslenskum ríkisfjármálum“ um langa hríð. „Það er mikilvægt verkefni fyrir hið opinbera að reyna að laga þetta. Svona er þetta ekki í öðrum löndum, að opinberar stofnanir geti bara sjálfar hækkað sín þjónustugjöld til dæmis af því að laun starfsmanna þeirra eru að hækka. Horft utan frá sýnist mér ekki eins mikil viðspyrna hjá þeim sem reka þessar stofnanir gegn launahækkunum eins og ella hefði verið, þegar þarf að taka sjálfstæða ákvörðun um að hækka verðið á þjónustunni. Þarna gerist þetta bara sjálfvirkt,“ sagði Þórarinn.
Vísitölutenging gjalda endir röng skilaboð
Hann segir Seðlabankann ekki telja þetta góða nálgun og að bankinn hafi haft áhyggjur af henni, bæði í þessu fjárlagafrumvarpi og því síðasta. „Ekki af því að hækkun á þessum gjöldum skipti í sjálfu sér voðalega miklu máli, heldur vegna afleiðinganna sem þetta hefur, til dæmis að hreyfa við verðbólguvæntingunum af því að við vorum á svo brothættum stað. Hættan er auðvitað að þetta endurtaki sig á næsta ári og ekki gleyma því að það eru aftur ríflegar launahækkanir um næstu áramót. Það er í þessu samhengi sem við vildum gjarnan sjá þetta endurhugsað,“ sagði Þórarinn.
Hann sagðist taka undir að þessi aðferð sendi röng skilaboð. „Ég heyri það til dæmis bara á mínum samtölum við rekstraraðila í smásöluverslun að þegar þeir heyra þetta verði þeirra samtöl við birgja til dæmis ansi erfið. Menn segja: Ríkið er að hækka um 5,2 — af hverju ættum við þá að hækka um 2,5? Þannig að ég er að þessu leyti alveg sammála, þetta er eitthvað sem mætti gjarnan endurskoða.“
Þórarinn ítrekaði hins vegar að til lengri tíma myndi aukið aðhald í ríkisfjármálum hjálpa til að ná verðbólgunni niður.
Upptaka af fundinum er aðgengileg fyrir félagsmenn á innri vef FA. Hér fyrir neðan eru myndir frá fundinum.



















