Samkeppnin eftir heimsfaraldur – fundur í beinu streymi 11. febrúar

28.01.2021

Hvaða áhrif hafa stóraukin ríkisumsvif vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar á samkeppni fyrirtækja á markaði? Hvernig er hægt að forðast að aðgerðir vegna kórónuveirukreppunnar veiki samkeppni? Hvar hafa stjórnvöld misstigið sig? Hvernig flýtir virk samkeppni fyrir efnahagsbatanum?

Þessum spurningum og ýmsum fleirum verður velt upp á fundi Félags atvinnurekenda, sem haldinn verður í tengslum við aðalfund félagsins fimmtudaginn 11. febrúar. Fundurinn verður í beinu streymi á Facebook-síðu FA og á visir.is.

Dagskrá:

14.00  Setning fundarins – Magnús Óli Ólafsson formaður FA

14.05  Ávarp – Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra samkeppnismála

14.10  The role of competition policy in supporting economic recovery – Ania Thiemann, sérfræðingur í samkeppnismálum hjá Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD

14.25  Á samkeppnismarkaði að keppa við ríkið – Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

14.40  Breytt búvörulög og samkeppni á matvörumarkaði – Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Innnesi

14.55  Sókn er besta vörnin – verndarstefna skaðar atvinnulíf og almenning – Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Nýjar fréttir

Innskráning