Selma Rut Þorsteinsdóttir, yfirsköpunarstjóri Pipar\TBWA, var kjörin formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA), samstarfsfélags Félags atvinnurekenda, á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Hún tekur við af Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni Hvíta hússins og varaformanni FA, sem gegnt hefur formennsku undanfarin ár. Selma hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vettvangi auglýsinga- og markaðsmála og hefur setið í stjórn SÍA undanfarin ár.
„Það er mikill heiður að fá að leiða SÍA á næsta starfsári. Auglýsinga- og markaðsgeirinn er að breytast hratt með tilkomu gervigreindar, breyttra neysluvenja og meiri krafna um árangur, en á sama tíma hefur það mannlega aldrei verið mikilvægara. Það eru þessir ólíku pólar sem við í auglýsingabransanum erum að kljást við á hverjum degi. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með stjórninni og stofunum að veg og vanda greinarinnar í heild sinni,“ segir Selma.
Samband íslenskra auglýsingastofa eru hagsmunasamtök auglýsingastofa á Íslandi. Aðild að SÍA eiga Brandenburg, ENNEMM, Hér & nú, Hvíta húsið, Kontor, PEEL og Pipar\TBWA. SÍA er samstarfsfélag Félags atvinnurekenda og fullgildur aðili að EACA, Evrópusamtökum samskiptastofa.
Auk Selmu sitja í stjórn SÍA Anna Kristín Kristjánsdóttir frá Hvíta húsinu, Hrafn Gunnarsson frá Brandenburg, Guðjón Ólafsson frá Hér & nú og Jóhannes Karl Sigursteinsson frá ENNEMM. Alex Jónsson frá Kontor er varamaður stjórnar.