Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði? – Opinn fundur 27. febrúar

04.02.2025

Er óhjákvæmilegt að matarverð sé hærra á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum? Hverju hefur aukin samkeppni á matvörumarkaði skilað neytendum – og er hægt að gera enn betur? Frammi fyrir hvers konar áskorunum standa innflytjendur og heildsalar matvöru? Og síðast en ekki síst – hverju geta stjórnvöld áorkað með því að lækka tolla og afnema samkeppnishömlur?

Þessar spurningar og fleiri verða til umræðu á opnum fundi Félags atvinnurekenda, sem verður haldinn kl. 15 fimmtudaginn 27. janúar á Grand Hóteli, í tengslum við aðalfund félagsins fyrr um daginn.

Dagskrá:

15.00   Fundurinn opnaður – Nýkjörinn formaður Félags atvinnurekenda
15.05   Inngangur fundarstjóra – Anna Kristín Kristjánsdóttir, varaformaður FA
15.10   Hvaða máli skiptir samkeppni? – Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra
15.20   Verðlag á Íslandi og í Evrópu – Snorri Gunnarsson sérfræðingur á greiningarsviði Hagstofu Íslands
15.35   Lækkun matvöruverðs í 36 ár – hvernig náum við meiri árangri? – Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus
15.50   Áskorandi á fákeppnismarkaði – Gréta María Grétarsdóttir
16.05   Samkeppni er okkar einkaþjálfari – Magnús Óli Ólafsson forstjóri Innness          
16.20   Við þurfum að gera betur – Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en skráning er nauðsynleg hér að neðan.

Að fundi loknum verður móttaka með léttum veitingum í boði FA.

Skráning á opinn fund um samkeppni á matvörumarkaði

Nýjar fréttir

Innskráning