„Endahnútur“ Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, í Viðskiptablaðinu 29. janúar 2025.
Ein af hagræðingartillögum Félags atvinnurekenda, sem send var inn í tillagnabanka forsætisráðuneytisins á dögunum, var að ríkið banni flugfélögum, sem það skiptir við, að veita ríkisstarfsmönnum vildarpunkta og að ævinlega verði leitað eftir lægsta verði þegar keyptar eru flugferðir fyrir ríkisstarfsmenn.
FA leggur sömuleiðis til að óháðar ferðaskrifstofur, sem eru sérfræðingar í að finna hagkvæmustu ferðirnar, sjái um að bóka utanlandsferðir fyrir ríkisstarfsmenn, í stað þess að mishæfir kollegar þeirra um allt ríkiskerfi sjái um ferðaskipulagningu.
Höfundur þessarar greinar hefur í áratug staðið í furðuárangurslitlu stappi við ríkið að afnema þá spillingu, sem felst í því að ríkisstarfsmenn þiggi og nýti vildarpunkta í sína þágu og fjölskyldu sinnar út á ferðir, sem skattgreiðendur borga. FA hefur sent ráðuneytum og Alþingi fjölda erinda. Félagið hefur bent á að það að alþingis- og embættismenn þiggi vildarpunkta fari þvert á siðareglur fyrir starfsfólk stjórnarráðsins, almennar siðareglur starfsmanna ríkisins, siðareglur alþingismanna og reglur um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins. Það stríðir væntanlega líka gegn hegningarlögum. Félagið bendir sömuleiðis á opinberar tölur um að ríkið skipti í mun minna mæli við lággjaldafélagið Play en keppinautinn Icelandair, þótt bæði félög séu með rammasamning við ríkið.
Sú skýring sem liggur beinast við á þessu ójafnvægi í viðskiptum við flugfélögin er að vildarpunktarnir freisti. Og sú skýring sem virðist hvað augljósust á að þessi spillingarstimpill hafi ekki fyrir löngu verið þveginn af íslenzka ríkinu og starfsmönnum þess er samtrygging stjórnmála- og embættismanna sem vilja ekki missa vildarpunktana sína. Nú, þegar ríkisstjórnin kallar eftir tillögum um hagræðingu og sparnað í ríkisrekstrinum, hljóta að verða gerðar breytingar í þessum efnum. Það sparar ekki bara peninga, heldur stuðlar líka að því að siðvæða opinbera kerfið og draga úr spillingu.